„Ég hef alls konar skoðanir á frammistöðu fjölmiðla undanfarnar vikur, eins og eðlilegt er fyrir mann sem á það til að þykjast vita allt best,“ segir Sölvi Tryggvason, fyrrverandi fjölmiðlamaður og fyrirlesari.
Það þekkja flestir Sölva enda var hann vinsæll sjónvarpsmaður á árum áður. Undanfarin misseri hefur Sölvi þó látið meira að sér kveða á sviði andlegrar og líkamlegrar heilsu og haldið ófáa fyrirlestrana.
Sölvi segir að þó hann hafi ýmsar skoðanir á fjölmiðlum sé lítil eftirspurn eftir neikvæðum sófasérfræðingum. Hann nýtir því tækifærið á Facebook-síðu sinni til að hrósa einum tilteknum sjónvarpsmanni – Sigmari Guðmundssyni.
„Þegar ég sá Sigmar Guðmundsson í sjónvarpssettinu í vikunni mundi ég hvað mér hefur alltaf fundist hann flinkur í því hlutverki. Eftir að hafa unnið sjálfur við að taka sjónvarpsviðtöl í rúman áratug veit ég allt um það hversu vandasamt það getur verið að gera það með sóma. Þegar hæfileikar og reynsla koma saman verður útkoman góð. Ég vil sjá Sigmar sem oftast í sjónvarpinu. Ef ég væri að velja mitt fimm manna úrvalslið af íslenskum sjónvarps-spyrlum yrði Sigmar fyrirliði,“ segir Sölvi.
Óhætt er að segja að margir taki undir hrósið. Frosti Logason, útvarpsmaður og einn umsjónarmanna Íslands í dag, segir til dæmis: „Simmi er número úno. Flottasta fyrirmyndin.“ Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur og fyrrverandi landsliðsmaður í fótbolta, segir: „Fagmaður fram í fingurgóma og drengur góður.“
Þá segir Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir fjölmiðlakona einfaldlega: „Frábær!“
Hvað segja lesendur? Hver er í uppáhaldi hjá þér í sjónvarpinu?