Sölvi vaknar til lífsins og minnist Fjölnis: „Fjölnir var frábær drengur með hjarta úr gulli“

Það hefur lítið heyrst af fjölmiðlamanninum Sölva Tryggvasyni undanfarin misseri, eða frá því að greint var frá því að hann hefði verið kærður fyrir meint ofbeldi.

Sölvi hélt úti vinsælum hlaðvarpsþáttum þar sem hann ræddi við þekkta Íslendinga um allt milli himins og jarðar. Fjölnir Geir Bragason, sem lést á laugardag, var gestur Sölva í febrúar síðastliðnum og vakti viðtalið við hann talsverða athygli á þeim tíma.

Allir þættirnir á YouTube-rás Sölva voru fjarlægðir í maímánuði en í gær endurbirti Sölvi viðtalið við Fjölni og minntist hans á samfélagsmiðlinum Instagram. „Eitt af mínum uppáhalds viðtölum. Fjölnir var frábær drengur með hjarta úr gulli,“ sagði Sölvi á Instagram-síðu sinni.