Fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggvason hefur látið lítið fyrir sér fara undanfarið ár eftir að hann hvarf úr sviðsljósinu í kjölfar ásakana um ofbeldi gegn tveimur konum.
Undanfarið hefur hann þó leyft fylgjendum sínum að fylgjast með daglegu lífi sínu.
Sölvi birti myndskeið af sér og Helga Jean Claessen, hlaðvarpsstjórnaanda, á Instagram.
Þeir félagarnir voru við fossinn Glym í Hvalfirði, þar sem þeir félagar voru í göngutúr og nutu veðurblíðunnar.
Fréttablaðið fjallar um málið, en þar má sjá skjáskot úr myndbandinu.