Sölvi Tryggva er á Spáni

Fjöl­miðla­maðurinn Sölvi Tryggva­son er nú staddur á Barcelona á Spáni. Það erDV.is sem greinir frá þessu.

Eins og al­kunna er greindi Frétta­blaðið frá því í maí síðast­liðnum að tvær konur hefðu leitað til lög­reglu vegna meints of­beldis af hálfu Sölva. Fréttirnar bárust eftir þrá­látar flökku­sögur um að Sölvi hefði beitt vændis­konu of­beldi, en Sölvi hafnaði því í­trekað, meðal annars í hlað­varps­þætti sínum.

Sölvi leitaði síðar að­stoðar á geð­deild en DV greinir frá því að í kjöl­farið hafi fjöl­miðla­maðurinn flogið til spánar. Þar hefur hann reynt að njóta lífsins.

Segir miðillinn að mynd­band hafi í vikunni gengið um sam­fé­lags­miðla af Sölva af skokka á sólar­strönd í Barcelona. Mynd­bandið tók ís­lensk kona fyrir til­viljun, að því er DV full­yrðir.