Sólveig vígslubiskup skrifar andlega erfiðleika ungs fólks á skort á kristinfræðikennslu

Sólveig Lára Guðmundsdóttir vígslubiskup á Hólum í Hjaltadal segir skort á kristindómsfræðslu ungs fólks eina af ástæðunum að baki andlegum erfiðleikum þeirra. Þetta sagði hún í viðtali við Morgunútvarpið á Rás 2 í morgun.

Sólveig, sem mætti í viðtalið sem staðgengill Agnesar M. Sigurðardóttur biskups, var spurð út í nýjan þjóðarpúls Gallup. Þar kom fram að einungis þriðjungur svarenda sögðust bera mikið traust til Þjóðkirkjunnar og þá bar rúmlega þriðjungur svarenda lítið traust.

Í ofanálag sögðust aðeins fimmtán prósent ánægð með störf Agnesar biskups en 27 prósent voru óánægð.

Sólveig sagði að þetta gæti skýrst af því að fólk þekki ekki nægilega vel til starfa þjóðkirkjunnar og biskupsins. Fólk treysti ekki því sem það þekkir ekki.

Þá var Sólveig sömuleiðis spurð að því hvers vegna fólk leitaði ekki til þjóðkirkjunnar til þess að svala „andlegri þörf sinni“ sagði Sólveig að það væri næga þjónusta að fá:

„Gríðarlega mörgum söfnuðum landsins er einmitt boðið upp á kyrrðarstundir og bænajóga, ég er ekki einu sinni með orð yfir allt það sem er í boði. Það er svo óendanlega margt í boði og kirkjan er einmitt að svara mjög víða þessari andlegu þörf,“ sagði Sólveig.

Hún er hugsanlega með lausn á andlegum vandamálum ungu kynslóðarinnar: „Ef við horfum á síðustu tuttugu árin hefur náttúrulega heil kynslóð vaxið úr grasi sem hefur ekki lært til dæmis neinar biblíusögur eða fengið neina kristindómsfræðslu og þá kannski veit ungt fólk ekki að kirkjan er að bjóða upp á þetta og fylla upp í þessa andlegu þörf sem þau eru að leita eftir,“ sagði Sólveig.

Hún hélt áfram: „Við erum alltaf að vinna í þessu og koma þessum málum á framfæri.“

Þá bætti Sólveig við: „Aukinn kvíði hjá ungu fólki og svona, við verðum að skoða þetta allt í samhengi.“