Sól­veig svarar kröfu SA um að fresta verk­falls­að­gerðum

Sam­tök At­vinnu­lífsins hafa óskað eftir því að verk­falls­að­gerðum verði frestað fyrir frekari við­ræður. Sól­veig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar svaraði þeirra kröfur rétt fyrir fund Eflingar og SA í dag.

Hún segir ekki koma til greina að fresta verk­falls­að­gerðum nema eitt­hvað raun­veru­legt komi frá Sam­tökum at­vinnu­lífsins. Hún sagðist ekki geta svarað frekari fyrir­spurnum um málið heldur ætlaði hún að sjá hvað gerðist á fundinum í dag en að þeirra krafa sé enn sú að gerður verður Eflingar­samningur við Eflingar­fólk.

Hvað varðar undan­þágu­beiðnir við­bragðs­aðila og strætis­vagna segir hún að verið sé að leggja loka­hönd á þær.

Eyjólfur Árni Rafns­son for­maður Sam­taka at­vinnu­lífsins sagði fyrir fundinn að SA ætlaði að setjast niður með Eflingu og að hann vonaði að fundurinn yrði langur og það tækist að semja. Hann sagði hreyfingu á við­ræðum.

Spurður um að­komu stjórn­valda sagði Eyjólfur að hlut­verk SA væri að semja og að þau ætluðu ekki að reiða sig á það hvað aðrir gera.