„Á þessum tímapunkti væri bókstaflega ekkert verra fyrir okkur borgarbúa en að hugmynd Hildar Björnsdóttur yrði að veruleika,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, í pistli á Facebook-síðu sinni.
Þar gerir hún grein Hildar Björnsdóttur í Morgunblaðinu – sem Hringbraut fjallaði um í morgun – að umtalsefni. Kallar Hildur eftir því að tveggja ára ráðningabann verði sett á borgina vegna mikillar fjölgunar starfsmanna. Bendir Hildur á að ef fer sem horfir verði fimmti hver vinnandi Reykvíkingur starfsmaður borgarinnar á næsta ári.
„Segjum sem svo að Hildur réði ríkjum og gæti framkvæmt hugmynd sína um ráðningarbann í Reykjavík. Í þeirri veröld myndi kreppan verða lengri og dýpri þar sem að borgin myndi þá ekki gera sitt til að bjóða fólki störf í fjöldaatvinnuleysinu. Fleiri yrðu þá föst án vinnu, en almennt er talið að fátt sé verra fyrir samfélagið en langvinnt fjöldaatvinnuleysi. Færri hefðu ráð á að „neyta“; kaupa varning í búðum borgarinnar; þrátt fyrir að borgin borgi lægst setta vinnuaflinu sínu smánarlaun eru þau þó hærri en atvinnuleysisbætur. Draga myndi úr innlendri eftirspurn en slík eftirspurn er það sem heldur hagkerfinu gangandi um þessar mundir.“
Sólveig bendir á að stórt hlutfall launþega borgarinnar starfi við svokölluð undirstöðustörf, til dæmis umönnun aldraðra og í leik- og grunnskólum borgarinnar.
„Borgin sér líka um ýmsa sorphirðu, rekur almenningssamgöngur, heldur utan um hjólastíga-kerfið og tryggir ýmsa útvistar- og íþróttaiðkunarmöguleika borgaranna.
Ég læt hér staðar numið í upptalningunni,“ segir Sólveig en segir að margt sé enn óupptalið. Í stuttu máli segir hún hugmynd Hildar glórulausa.
„Ef að draumur Hildar yrði að raunveruleika og ráðningarbann yrði sett á í Reykjavíkurborg myndi það gerast að ekki væri hægt að sinna öllum þeim börnum sem þarf að sinna á leikskólum.“ Þá væri ekki heldur hægt að sinna þörfum hins sístækkandi hóps eldra fólks.
„Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins hefur í raun skrifað dystópíska örsögu. Sögu af samfélagi þar sem mannlegar þarfir mæta afgangi vegna þess að Excel-skjal er orðið Guð og öll þurfa að lúta vilja skjalsins,“ segir hún og bætir við að ekkert yrði verra á þessum tímapunkti en að hugmynd Hildar yrði að veruleika.
„Hún hefur í raun með þessari fáránlegu tillögu sýnt afdráttarlaus fram á það að hún skilur ekki nútímasamfélag, skilur ekki hlutverk borgarinnar og skilur ekki þarfir borgarbúa. Skilur ekki einu sinni hvernig verðmætasköpun kapítalismans er gerð möguleg með vinnu þeirra sem umannast mannlegt samfélag. Þetta skilningsleysi hennar á einstaklega basic atriðum gerir það að verkum að ég skil bara alls ekki af hverju í ósköpunum hún er að sækjast eftir völdum í borginni. Ætli hún haldi í alvöru að fólk hafi áhuga á að búa í þeirri Thatcher-ísku ömurð sem hún hefur áhuga á að skapa?“
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Hildur Björnsdóttir, skrifar grein í Morgunblaðið í dag, „Ráðningarbann í...
Posted by Sólveig Anna Jónsdóttir on Fimmtudagur, 3. desember 2020