Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir Samtök atvinnulífsins (SA) „fjárkúga stjórnvöld með hótunum um að efna til stórkostlegs ófriðar á vinnumarkaði.“
Hún segir að það sé merkilegt að fylgjast með þeirri atburðarás sem nú sé í gangi þar sem SA fari fram með „óheilindum og blekkingum.“
Vísar Sólveig þar til yfirstandandi átaka SA og ASÍ um það hvort forsendur Lífskjarasamningsins haldi en samkvæmt þeim eiga laun að hækka um næstu áramót.
Á meðan verkalýðshreyfingin hefur komist að þeirri niðurstöðu forsendur samninganna haldi hafa forsvarsmenn SA talað um forsendubrest.
Lagt til að launahækkunum verði frestað
„Þetta gera SA þrátt fyrir að þeim sé fullljóst að þetta séu ósannindi; eins og ég og aðrir höfum útskýrt vel og vandlega á síðustu dögum hafa forsendur samningsins staðist. Samtökin eru búin að átta sig á því að okkur verður ekki haggað og þá er farið í risavaxna herferð gagnvart stjórnvöldum í landinu til að fjárkúga út úr þeim „aðgerðir“ fyrir stórfyrirtæki í ferðaþjónustunni,“ segir Sólveig í færslu á Facebook-síðu sinni.
Hefur SA meðal annars lagt til að launahækkunum verði frestað eða mótframlag atvinnurekenda í lífeyrissjóð lækka tímabundið.
„Nú bíðum við öll eftir því að sjá hvort að lýðræðislega kjörin stjórnvöld láti undan fjárkúgun Samtaka atvinnulífsins sem tekið hafa kjarasamninga í gíslingu! Við vitum auðvitað að vald auðstéttarinnar er stórkostlegt á þessu landi en halda SA de facto um valdatauma ríkisvaldsins?“