„Nú er komið nóg: Árásum hálaunamanna á láglaunafólk skal linna,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna gerir frétt Markaðarins í dag að umtalsefni á Facebook en í blaðinu er meðal annars rætt við Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing Íslandsbanka, sem telur að miklar launahækkanir nú séu líklegar til að festa atvinnuleysi í sessi.
Finnur Oddsson, forstjóri Haga, segir að engum dyljist að laun hafi hækkað mest af öllum kostnaðarliðum í verslun. Að gefinni óbreyttri álagningu komi launahækkanir niður á öllum rekstri. Til lengri tíma sé takmörkuð innistæða fyrir launahækkunum umfram framleiðniaukningu í hagkerfinu.
„Slíkar hækkanir leiða einfaldlega af sér rýrnun á kaupmætti allra landsmanna,“ hefur Markaðurinn eftir Finni.
Sólveig Anna gefur lítið fyrir þennan málatilbúnað og segir skömm að því að hálaunamenn haldi áfram að ráðast á kjör láglaunafólks.
„Ég hef ítrekað bent á að hjá hverju fyrirtæki sem er með yfirborganir (borgar yfir taxta þá sem samið er um í kjarasamningum) er hægt að lækka launakostnað með því að lækka yfirborganir. Slíkt er jú vald eigenda atvinnutækjanna,“ segir Sólveig í færslu sinni og bætir við að staðreyndin sé sú að á íslenskum vinnumarkaði sé líka hópur fólks sem vinnur á strípuðum töxtum.
„Þetta er lægst launaðasta fólkið á íslenskum vinnumarkaði! Fólkið sem t.d. hefur þurft að vera í fleiri en einni vinnu eða í endalausri aukavinnu, en hefur nú í atvinnuleysinu ekki tök á slíku. Þetta er fólkið sem er með 1807 krónur á tímann. Fólkið sem með tekjutryggingunni er með 335.000 krónur á mánuði. Og trúið mér: Að komast af á þessum launum á einu dýrasta landi í heimi er ekki auðvelt.“
Sólveig bendir á að kjarasamningar séu í gildi og „þessir hálauna-bankamenn“ hafi ekki komið að þeim. „Þeim koma þeir ekki við. Stöðugur áróður þeirra er aðför að friði á vinnumarkaði. Þeir virða ekki leikreglur íslensks vinnumarkaðar. Þeir skilja ekkert nema þær reglur sem þeir sjálfir hafa sett: Hinir ríku skulu verða ríkari og hin fátæku skulu halda áfram að halda kjafti og gera það sem þeim er sagt. En ég segi það hátt og snjallt: Reglur þessara manna eru reglur grimmdarinnar. Þeirra reglur eru reglur arðránsins. Þeirra reglur eru reglur kúgunarinnar. Ég fordæmi þær af öllu hjarta. Og ég neita að lifa eftir þeim,“ segir hún.
Sólveig segir að Yngvi Harðarson, hagfræðingur hjá Analytica, sem einnig er rætt við í greininni, Jón Bjarki Bentsson og Finnur Oddsson séu allir með laun sem verkafólki getur látið sig dreyma um.
„Fólkið á strípuðu töxtunum eru meðlimir í þessu samfélagi. Fullgildir. Þau greiða sína skatta og sín gjöld. Þau eiga heimili og börn. Þau hafa kosið og samþykkt kjarasamninga. Þessar hækkanir eru þeirra. Þær verða ekki af þeim teknar. Og milljón-króna mennirnir, sem vita ekki aura sinna tal, sem lifa í vellystingum vegna vinnu vinnuaflsins ættu að sjá sóma sinn í því að þegja.“
Nú er komið nóg: Árásum hálaunamanna á láglaunafólk skal linna! Þvílík skömm er að því að hálaunamenn haldi áfram að...
Posted by Sólveig Anna Jónsdóttir on Miðvikudagur, 11. nóvember 2020