Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, sendi bæjarstjóra, bæjarstjórn og fjármálastjóra Seltjarnarnesbæjar bréf í morgun eftir að fjórtán láglaunakonum var sagt upp störfum.
Konunum var sagt upp þann 22. maí síðastliðinn en um var að ræða félagsmann Eflingar og þrettán starfsmenn Sameykis. Í bréfinu er sett fram sú krafa að konurnar verði endurráðnar og beðnar afsökunar „á þeirri fádæma grimmilegu aðgerð að vera gerð atvinnulaus þegar fjöldaatvinnuleysi ríkir og ástandið hjá vinnandi fólki er hræðilega erfitt.“
Sólveig segir frá þessu á Facebook-síðu sinni og birtir umrætt bréf. Í færslunni segir hún að félagsmaður hennar sem gerð var atvinnulaus sé 59 ára kona sem hafði starfað hjá bænum í rúm 13 ár. Starfaði konan í eldhúsi þar sem matur fyrir skólabörn bæjarins og starfsmenn á skrifstofum bæjarins var matreiddur.
„Fjórtán konum sem flestar eru komnar yfir fimmtugt og flestar með langan starfsaldur misstu vinnuna sína þennan dag, voru sendar út í kuldann af þeim sem á tyllidögum stæra sig af jafnrétti og mikilvægi þess að gæta að kynjasjónarmiðum. Þeim sem dettur ekki í hug að lækka eigin laun eða fríðindi en sjá ekkert athugavert við að eyðileggja líf láglaunakvenna.“
Sólveig segist líka gera verulegar athugasemdir við að bæjarfélagið vogi sér að reka láglaunakonur um leið og kjarasamningar sem innihalda sérstaka hækkun lægstu launa hafa verið undirritaðir. „Einstaklega ósvífið og auðvitað ætti engri manneskju að láta sér detta það í hug.“
Sólveig kveðst vona að að Seltjarnarnesbær sjái að sér og dragi allar uppsagnirnar til baka.
„Og ég vona að önnur sveitarfélög og aðrir opinberar atvinnurekendur skilji að það síðasta sem þau eiga að gera núna er að reka verkafólk. Það er ekki bara andstyggilegt heldur líka ótrúlega heimskulegt. Við munum fylgjast með, greina frá og berjast gegn öllum svona aðgerðum. Enginn skal láta sér detta annað í hug.“