Sól­veig Anna ó­sátt við Kven­rétt­ind­a­fé­lag­ið: Okkur var ekki boð­ið

Kven­rétt­ind­a­fé­lag Ís­lands birt­i í dag mynd í til­efn­i þess að 19. júní 1915 feng­u kon­ur á Ís­land­i kosn­ing­a­rétt. Mynd­in var styrkt af Ís­lands­bank­a, BYKO og Lands­virkj­un. Þar má sjá þjóð­þekkt­a ein­stak­ling­a á borð við Eliz­u Reid for­set­a­frú, Jóh­önn­u Sig­urð­ar­dótt­ir fyrr­ver­and­i for­sæt­is­ráð­herr­a og Bjarn­a Ben­e­dikts­son fjár­mál­a­ráð­herr­a.

Verk­a­lýðs­for­ing­inn Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir ger­ir mynd­in­a að um­ræð­u­efn­i á Fac­e­bo­ok-síðu sinn­i. Hún ger­ir sér­stak­a at­hug­a­semd við það að Bogi Nils Bog­a­son, for­stjór­i Icel­and­a­ir, sé á mynd­inn­i.

„Það er ekki nema rétt ár síð­an að Bogi Nils leidd­i eina öm­ur­leg­ust­u að­för að kvenn­a­stétt sem sést hef­ur í ís­lenskr­i vinn­u­mark­aðs-pól­it­ík, þeg­ar að Icel­and­a­ir og SA "un­i­on-böst­uð­u" Flug­freyj­u­fé­lag Ís­lands í miðr­i kjar­a­deil­u. Eins og þið mun­ið kannsk­i var plan­ið að fá karl­a­stétt­in­a flug­menn til að gang­a í störf flug­freyj­a. Ég hefð­i sagt "Þett­a mun aldr­ei gleym­ast" en mig lang­ar ekki að segj­a ó­satt,“ skrif­ar Sól­veig Anna.

Hún seg­ir að hvork­i henn­i né Agni­eszk­u Ewu, for­manni og var­a­for­mann­i Efling­ar, hafi ver­ið boð­ið að taka þátt. „Það var senn­i­leg­a bara ekki pláss fyr­ir okk­ur,“ skrif­ar hún að lok­um á Fac­e­bo­ok.