Sólveig opnar sig um morðhótanirnar: „Ömurlegt að þurfa að upplifa svona“

Í dag var greint frá því að menn sem nú eru grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk hafi rætt sín á milli um að myrða Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar.

Hún tjáði sig um málið í kvöldfréttum RÚV. Hún fékk að sjá skilboðin sem mennirnir sendu sín á milli, og um þau segir Sólveig: „Þar kom að væri sem sagt svokölluð kommalufsa og að aðili sem var þátttakandi í þessum samskiptum ætlaði sér að drepa mig einn daginn,“

Aðspurð út í hvernig sér liði vegna málsins svaraði Sólveig: „Já, auðvitað var þetta fyrst bara svolítið skrýtið, auðvitað óþægilegt. En það var kannski ekki svona bara þegar ég kom heim um kvöldið og settist niður með fjölskyldunni minni og við fórum að ræða þetta þar sem ég hætti að gera lítið úr þessu og hætti að grína einhvern veginn með þetta með sjálfum mér og auðvitað bara horfðist í augu við það með þeim að þetta væri sannarlega ekkert grín, auðvitað bara mjög alvarlegt og ömurlegt að þurfa að upplifa svona og sjá svona.“

Sólveig tekur fram að hún þekki ekki til mannanna sem áttu þessi samskipti. Hún hafi þó áður orðið fyrir barðinu á hótunum, en henni hafi verið hótað líkamsmeiðingum og gert lögreglu viðvart um það.

„Ég fæ mér enga öryggisgæslu og við bara tökumst á við þetta ég og fjölskyldan mín. Förum bara varlega eins og ég segi eins og við höfum verið að gera síðustu mörgu mánuði löngu áður en ég vissi af þessu.“ sagði hún.