Sólveig fór á Baggalút: Fólkið við hliðina á henni gat ekki klárað tónleikana vegna ölvunar

Óhætt er að segja að tónleikar Baggalúts á laugardagskvöld hafi dregið dilk á eftir sér en eins og lögregla greindi frá í gær voru sóttvarnarreglur brotnar á tónleikunum.

Mikil ölvun var í Háskólabíói og sagði Jóhann Karl Þórisson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Vísi að margir virðist hafa mætt ölvaðir á staðinn.

„Við veittum því til dæmis athygli á Baggalútstónleikunum að það var talsverð ölvun á mannskapnum sem var að koma. Um leið og þú ert orðinn ölvaður þá áttu erfiðara með að fara eftir reglum, vera með grímur og svona. Þetta eru reglurnar,“ sagði Jóhann.

Vísir greindi svo frá því í gærkvöldi að Baggalútsmenn hörmuðu það mjög ef sóttvarnarbrot hefðu verið framin á tónleikunum. Bragi Valdimar Skúlason viðurkenndi fúslega að margir hefðu drukkið áfengi á tónleikunum eða fyrir þá en það sé erfitt að ráða við það.

„Við getum ekki bannað fólki að fá sér að drykki fyrir tón­leikana. Þannig eru ekki reglurnar núna.“

Undir frétt Vísis á Facebook eru fjörugar umræður um tónleikana, meðal annars segir kona sem fór á tónleikana, Sólveig að nafni, að ölvun hafi verið mikil.

„Ég fór sjálf á tónleikana í fyrsta skipti. Að leyfa fólki að fara með áfengið inn í sal, hlýtur að hafa verið gegn sóttvarnarreglum. Fólkið er búið að fá sér rækilega í glas áður en mætt er á staðinn. Við hliðina á mér sat fólk sem gat ekki klárað tónleikana v/ölvunar.“

Sólveig segir að hún hafi þó haft gaman að tónleikunum og hún vilji gjarnan fara aftur. Næst verði þó annar tími en föstudags- eða laugardagskvöld fyrir valinu.