Sólveig Anna vill atvinnuleysisbætur í 350 þúsund

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að atvinnuleysisbætur þurfi að vera um 350 þúsund krónur til að vera viðunandi. Í dag eru atvinnuleysisbætur 289 þúsund á mánuði.

„Þær eru mjög lágar og það gengur ekki að við dýpkum kreppuna enn meira með því að hafa hér stóran hóp af fólki með svo lítið á milli handanna að það geti ekki tekið þátt í því að ná efnahagsmálum hér á betri stað,“ sagði Sólveig Anna í viðtali í morgunþætti Rásar 1 og 2 í morgun.

„Svo skiptir máli að sá tími sem að fólk er á hlutfalli af sínum fyrri launum sé lengdur og það hlutfall sé aukið úr 70 prósentum upp í það minnsta 90 prósent, svo fólk sé nær því í lengri tíma að vera með sem mest af sínum vanabundnu launum.“

Rúmlega þúsund félagsmenn Eflingar eru nú komnir á atvinnuleysisbætur, þá eru um 6 þúsund komnir á hlutabótaleiðina.

Telur hún að til að landið komist upp úr efnahagslægð þurfi að tryggja afkomu fólks og að það geti tekið þátt í neyslu. „Það getum við ekki gert ef fólk sér allt sem það hefur á milli handanna fara í húsnæðiskostnað og rétt svo ná að fæða fjölskyldu sína.