„Að lokum legg ég til að blætis-dýrkuninni á húsinu Höfða verði hætt samstundis og fjölskyldunni sem nú er í felum fyrir íslensku ríkislögreglunni verði boðið að dvelja þar meðan hún getur fundið sitt eigið húsnæði.“
Þetta segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, á Facebook-síðu sinni.
Þar gerir hún grein þeirra Dags B. Eggertssonar borgarstjóra og Jóns Atla Benediktssonar, rektors Háskóla Íslands, í Fréttablaðinu í dag að umtalsefni en tilefni greinarinnar er að í þessari viku er alþjóðlegur dagur friðar. Hvetja þeir almenning til „virkrar þátttöku í mikilvægri umræðu um hvernig við sem samfélag getum lagt okkar fa mörkum í þágu friðar“, eins og það er orðað.
„Sem áhugamanneskja um frið í heiminum hlýt ég að fagna þessari hvatningu,“ segir Sólveig Anna og bætir við að sem innlegg í umræðuna leggi hún til að Ísland hætti þátttöku í NATO.
„Sem innlegg í umræðuna legg ég líka til að þeir flokkar sem tala fyrir mannúð og friðsemd í mannlegum samskiptum reyni að lifa sjálfir eftir sínum fögru orðum. Þegar að Samfylkingin og VG voru saman í ríkisstjórn þessa lands tóku flokkarnir glaðir þátt í því að koma á svokölluðu "loftferðabanni" yfir Líbíu sem þýddi í raun að vestrænar þotur komu og sprengdu allt í tætlur. Þetta var gert til að "bjarga fólkinu í Líbíu".“
„Svo langar mig að rifja upp hér að það var ekki fyrr en að aktivistar höfðu mjög hávært sett fram þá afdráttarlausu kröfu að Háskóli Íslands þar sem Jón Atli er rektor hætti að sjá um tanngreiningar fyrir Útlendingastofnun að HÍ tók ákvörðun um að hætta þeim. Tanngreiningar eru notaðar til að útbúa ástæðu fyrir ríkið að vísa ungu fólki úr landi sem hér hefur sótt um skjól, oft fólki sem er á flótta vegna blóðþorsta og ófriðarhegðunar Nató og Vesturlanda á alþjóðavettvangi. HÍ hætti að tanngreina núna í mars síðastliðnum. Ég auðvitað fagna því innilega en veit jafnframt að tanngreiningar væru ennþá í gangi ef að fólk hefði ekki sett mikinn tíma og mikla orku í að knýja á um að þeim yrði hætt.“
Sólveig Anna segir að ástæðan fyrir því að hún skrifar umræddan pistil sé sú að henni finnst ekki sæmandi að fólk með völd í samfélaginu skuli ekki vera fært um meira en að hvetja almenning til að hugsa um frið í mannlegum samskiptum.
„Ég í það minnsta þarf enga slíka hvatningu og ég þarf sannarlega ekki ráðstefnu um frið. Ég og almenningur þessa heims þurfum aftur á móti að fólk með völd og status taki gallharða afstöðu með friði og gegn stríði, með því að hætta að gera hlutina sífellt verri með endalausum árásum og innrásum. Tími orða er liðinn og tími aðgerða runninn upp. Fyrir löngu síðan,“ segir Sólveig Anna sem endar pistilinn með fyrrnefndri hvatningu, að egypska fjölskyldan fái að dvelja í Höfða þar til hún finnur eigið húsnæði. Friðarsetur opnaði sem kunnugt er í Höfða árið 2016.