Sólveig Anna útskýrir hvers vegna Efling boðar ekki frekari verkföll

„Þetta var hin rétta ákvörðun í ljósi stöðunnar þegar að Samtök atvinnulífsins hafa gripið til þessa tryllta bragðs í örvæntingu sinni að geta ekki gert kjarasamning við Eflingu. Þá er ljóst að frekari verkfallsaðgerðir okkar munu skila okkur þeim árangri sem þær ættu að skila, sem er að knýja viðsemjendur okkur að samningaborðinu,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir í samtali við Fréttablaðið þegar hún er spurð út í þá ákvörðun félagsins boða ekki til frekari verkfalla.

Samninganefnd Eflingar ákvað á fundi sínum í gær að boða ekki til þeirra verkfallsaðgerða sem samþykktar voru í nýliðinni atkvæðagreiðslu á hótelum, í öryggisgæslu og við ræstingar. Það kemur fram í tilkynningu frá félaginu og fara því þessir starfsmenn ekki í verkfall að svo stöddu.

Nánar er rætt við Sólveigu Önnu á vef Fréttablaðsins.