Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að stéttaskiptingin og misskiptingin vaxi og dafni í samfélaginu okkar. Þetta segir Sólveig Anna í tengslum við fréttir af veglegri launahækkun sem Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar, fékk á dögunum.
Fréttablaðið greinir frá því í dag að stjórn Orkuveitunnar hafi samþykkt að hækka laun hans um 370 þúsund krónur í mánuði. Voru launin um 2,5 milljónir króna fyrir hækkunina en eru nú tæpar 2,9 milljónir króna. Þessu til viðbótar fær Bjarni þriggja milljóna króna eingreiðslu.
Sólveig Anna segir að stjórnmálamenn landsins geri ekkert til að stoppa þessa þróun stéttaskiptingar og misskiptingar.
„Reynir það ekki einu sinni. Og gjáin á milli þeirra sem eiga og mega, og þeirra sem færast neðar og neðar í grimmilegu stigveldi stéttaskiptingarinnar verður sífellt stærri. Fjármagnið er stöðugt fært til þeirra sem hafa það einstaklega gott samkvæmt öllum sammannlegum mælikvörðum, á meðan hræðilegur skuggi peningaleysis liggur yfir hinum valdalausu.“
Sólveig Anna vísar í orð franska rithöfundarins Edouard Louis sem sagði að valdastéttin héldi að þau fátæku voru of rík og hin ríku ekki nógu rík.
„Ástandið er fáránlegt. Hugmyndafræði valdastéttarinnar er galin. Hún er full af grimmd og græðgi. Hún dýrkar stjórana og leitar allra leiða til að verðlauna þá um leið og hún fyrirlítur þau sem engu stjórna og ekkert eiga, og telur þau í raun ekkert verðskulda nema meiri erfiðleika.“
Sólveig Anna segir í færslu sinni á Facebook að íslenska valdastéttin hafi ekkert gert í þessari kreppu nema tryggja að hin ríku verði ríkari og að hin allslausu þjáist.
„Allt röfl um ráðdeild í opinberum fjármálum er ekkert nema röfl, bull í fólki sem vill blekkja vinnuaflið og kúga það til hlýðni með hræðsluáróðri um að við séum öll í þessu saman og eigum öll að axla byrðar og svo framvegis endalaust. Þegar að kapítalistar, forréttindahópar og meðlimir borgarastéttarinnar vilja stærri skammt af peningum eru fjárhirslurnar alltaf opnaðar upp á gátt en um leið og vinnuaflið bankar á dyrnar er öllu skellt í lás og byrjað að góla: "Ætliði að drepa Ísland?". Meira bullástandið í þessu klikkaða þjóðfélagi.“