Sólveig Anna: „Það er kannski undarlegt að formaður í verkalýðsfélagi birti færslu eins og þessa“

„Ég vona að þau sem þola ekki að sjá verka og láglaunafólk ná árangri fari að finna smá sálarfrið,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, í pistli á Facebook-síðu sinni.

Í færslu sinni birtir Sólveig Anna upplýsingar um hvað Efling greiddi í sjúkrapeninga og almenna styrki til félagsmanna sinna um nýliðin mánaðamót.

„31. maí greiddi Efling sjúkradagpeninga til 185 félagsmanna upp á samtals 70.726.229 krónur. Almennir styrkir voru greiddur til 429 félagsmanna upp á samtals 9.397.822 krónur.

Það er kannski undarlegt að formaður í verkalýðsfélagi birti færslu eins og þessa,“ segir Sólveig Anna sem útskýrir hvers vegna hún birtir færsluna. Hún virðist komin með nóg af neikvæðninni sem virðist umlykja allt.

„En ég geri það vegna þess að enn fer hópur fólks um samfélagsmiðla skrifandi athugasemdir sem opinbera örvæntingarfulla þrá þeirra í að mér og félögum mínum í stjórn Eflingar mistakist verkefnið sem við þó fengum afdráttarlaust umboð félagsfólks til að sinna:

Að stýra félaginu, móta stefnu, innleiða breytingar og leiða Eflingu áfram í átt að sigrum í efnahagslegri réttlætisbaráttu verka og láglaunafólks.“

Sólveig Anna endar skrif sín á þessum orðum:

„Ég vona að þau sem þola ekki að sjá verka og láglaunafólk ná árangri fari að finna smá sálarfrið og hætti að þykjast hafa áhyggjur af velferð félagsfólks Eflingar. Við viljum ekki sjá ykkar krókódílstár. Við erum fullfær um að reka félagið okkar. Og það er kominn tími að öll viðurkenni þá augljósu staðreynd.“