Stéttarfélagið Efling hafnar lögmæti miðlunartillögu sem ríkissáttasemjari lagði fram í morgun og fordæmir vinnubrög hans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þetta kemur fram í frétt Fréttablaðsins.
„Tillagan var lögð fram með óeðlilegum flýti og án samráðs við Eflingu.“ segir í henni.
Í yfirlýsingu Eflingar er fullyrt að miðlunartillaga ríkissáttasemjara fari gegn öllum venjum í samskiptum aðila vinnumarkaðarins, þar sem tíðkist hafi að miðlunartillögur fari bil beggja.
„Hin svokallaða miðlunartillaga felur í sér að afstöðu annars aðilans er þröngvað upp á hinn. Tillagan er algjörlega samhljóða síðasta tilboði Samtaka atvinnulífsins. Ekkert tillit var tekið til sjónarmiða Eflingar í tillögunni. Efling fordæmir þessi vinnubrögð.“
Auk þess er fullyrt að fyrirkomulag ríkissáttasemjara sé ólýðræðislegt.
„Á blaðamannafundi í dag lét ríkissáttasemjari þess ógetið að til að miðlunartillögu sé hafnað skv. lögum um stéttarfélög og vinnudeilur nægir ekki að henni sé hafnað af meirihluta greiddra atkvæða. Mótatkvæði þurfa auk þess að vera fjórðungur af öllum á kjörskrá. Þetta fyrirkomulag atkvæðagreiðslu er ólýðræðisleg og íþyngjandi, sem setur enn frekari spurningarmerki við það samráðsleysi sem embætti ríkissáttasemjara sýnir gagnvart Eflingu.“
Yfirlýsingin endurspegla orð Sólveigar fyrr í dag í samtali við mbl.is: „Við höfnum lögmæti þessarar tillögu sem ríkissáttasemjari hefur lagt fram. Hún er lögð fram án nokkurs samráðs við Eflingu. Atburðarásin er með svo miklum ólíkindum að það er erfitt fyrir mig á þessum tímapunkti að ná utan um það sem gerst hefur,“ sagði Sólveig.
Í samtali viðmbl.is segist Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, einnig ósáttur með tillöguna.
„Þetta er skipbrot viðræðna. Það hefur verið afstaða Samtaka atvinnulífsins í áratugi að kalla ekki eftir inngripum ríkisvaldsins í kjaradeilur. Og það á líka við í þessari deilu okkar við Eflingu,“ segir Halldór í samtali við mbl.is.
„Ef ég skil hann rétt á blaðamannafundinum þá hefur hann metið sem svo að þessi deila væri í óleysanlegum hnút og það yrði að höggva á hann.“
Hvað varðar fyrirhuguð verkföll, þá segir Halldór að það hafi verið hans trú að Eflingu hefði ekki orðið ágengt með slíkum aðgerðum.
„Við höfum talað alveg skýrt um það að verkalýðsfélög sem boða verkföll og framkvæma verkföll á umbjóðendur Samtaka atvinnulífsins fyrirgeri sér afturvirkni kjarasamninga. En núna er ríkissáttasemjari að bjóða þessa sömu afturvirkni sem er miður og ég er ósáttur við,“ segir Halldór Benjamín.