Sólveig Anna: „Smánarblettur, skömm, andstyggð, rugl“

„Ég veit ekki hvað þið viljið kalla þetta eða hvaða tilfinningar vakna hjá ykkur við að lesa þetta. En ég veit hvað ég kalla þetta: Smánarblett, skömm, andstyggð, rugl.“

Þetta segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, í færslu á Facebook-síðu sinni. Sólveig greinir frá því að snemma í síðustu viku hafi hún fengið í hendur skýrslu sem Varða tók saman um stöðu Eflingarfólks út frá niðurstöðum úr stórri könnun sem gerð var fyrir ASÍ og BSRB og kom út í febrúar síðastliðinn.

„Ég vissi auðvitað og hef lengi vitað að staða Eflingarfólks er erfið. Það ættu í raun öll að vita; við sem erum í Eflingu höfum á síðustu árum ekki gert neitt annað en að benda á hversu fáránlegt ástandið er orðið og taka alla slagi sem við getum til að ná fram breytingum. Þau sem hafa hlustað ættu því að vera vel upplýst. En þegar ég las skýrsluna upplifði ég samt mikla sorg og heita bræði,“ segir hún og bætir við að það að sjá misskiptinguna svart á hvítu sé eins og að anda að sér viðbjóðslegri eitrun sem sest að í heilanum og hjartanu. „Mikil sorg og heit bræði.“

Sólveig Anna tekur svo nokkur atriði úr skýrslunni um líf Eflingarkvenna, þeirra sem eru með vinnu og þeirra atvinnulausu:

„19,2% Eflingarkvenna sem á erfitt með að ná endum saman.

Samanlagt á 43,2% Eflingarkvenna erfitt eða frekar erfitt með að ná endum saman.

Ríflega 36% Eflingarkvenna eru á leigumarkaði.

33,8% Eflingarkvenna geta ekki mætt óvæntum útgjöldum.

25,9% Eflingarkvenna geta ekki farið í árlegt frí með fjölskyldunni.

17,8% Eflingarkvenna hafa þurft að fá fjárhagsaðstoð frá sveitarfélagi, ættingjum og vinum, eða hjálparsamtökum.

41,4% Eflingar-kvenna meta andlega heilsu sína slæma.

21,6% Eflingar-kvenna meta líkamlega heilsu sína slæma.

57,3% Eflingar-kvenna hafa neitað sér um heilbrigðisþjónustu á síðastliðnum sex mánuðum.

Sólveig Anna segir að svona sé staðan núna, nákvæmlega hér. „Hver getur látið eins og ekkert sé? Ég veit ekki hvað þið viljið kalla þetta eða hvaða tilfinningar vakna hjá ykkur við að lesa þetta. En ég veit hvað ég kalla þetta: Smánarblett, skömm, andstyggð, rugl.“

Hún segir þetta afleiðingu eitrunar þeirra sem fengið hefur að breiða úr sér í samfélagi okkar, eitrunar þeirrar pólitísku afstöðu að tilvera vinnuaflsins skipti engu máli.

„Sama fólk og grobbar sig stöðugt yfir því að allt sem það snerti verði ýmist að gulli eða gamni; besta jafnréttið, mesti árangurinn, skemmtilegasta borgin og svo framvegis ríkir yfir þeirri skömm sem lýst er hér að ofan. Þetta fólk hefur sóst eftir völdum af einbeittri löngun í þau, einbeittri trú á að völdin séu þeirra réttur en getur ekki skilið, vill ekki skilja, að konurnar sem eru undirstaða verðmætasköpunar þjóðfélagsins, sem eru undirstaða þess að fólkið ofarlega í stigveldinu getur lifað eins og aðall fyrri alda, lifa við ÓBOÐLEGAR AÐSTÆÐUR.“

Færslu Sólveigar Önnu í heild sinni má lesa hér að neðan:

Snemma í síðustu viku fékk ég í hendurnar skýrslu þá sem Varða tók saman um stöðu Eflingarfólks út frá niðurstöðunum úr...

Posted by Sólveig Anna Jónsdóttir on Sunnudagur, 28. mars 2021