Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir undir færslu Þorvaldar Þorvaldssonar, þekktastan úr Alþýðufylkingu, að hún sé búin að skrá sig í trúfélagið DíaMat.
„Var að skrá mig í DíaMat,“ segir Sólveig en DíaMat er lífskoðunarfélag sem var stofnað 2015 og er með 160 meðlimi. Í færslunni sem Sólveig skrifar undir er verið að tilkynna að DíaMat hafi verið að gefa Rétti barna á flótta 250 þúsund krónur.
„DíaMat gefur Rétti barna á flótta styrk upp á 250.000 kr! Við sendum okkar bestu þakkir fyrir þennan fjárstuðning. Slíkur stuðningur rennur alltaf beint til þeirra barna á flótta sem þurfa á fjárhagslegri aðstoð að halda fyrir lögfræðikostnaði meðan þau sækja um vernd hér á landi,“ segir í færslunni.
Forstöðumaður félagsins er Vésteinn Valgarðsson en DíaMat stendur fyrir díalektíska efnishyggju en kjarni í hugmyndum Karls Marx. Félagið er í raun trúlaust lífskoðunarfélag Marxista á Íslandi. Samtökin hafa í gegnum tíðina styrkt frjáls félagasamtök sem eru valdeflandi fyrir alþýðufólk.
Í apríl 2021 var félaginu synjað úthlutun á lóð af Reykjavíkurborg en áður hafði ákvörðun um að synja félaginu um lóð verið úrskurðuð ólögmæt af samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytin