Sólveig Anna setur spurningamerki við veru Eflingar í ASÍ: „Greiða launakostnað hálauna sérfræðinga“

Sólveig Anna Jónsdóttir, sem sækist eftir því að verða aftur formaður Eflingar, setur spurningamerki við veru Eflingar í Alþýðusambandi Íslands og spyr á Facebook hvað það sé sem Efling fái í staðinn.

„Mín afstaða er sú að það sé ekki aðeins réttur, heldur skylda þeirra sem fara með völdin í Eflingu, langstærsta félagi verka og láglaunafólks að grandskoða hvað við erum að greiða fyrir. Það er einfaldlega óábyrgt að gera það ekki,“ segir hún.

Þylur hún svo upp mörg dæmi um að ASÍ hafi gengið gegn hagsmunum láglaunafólks.

Það hafi strax komið upp fyrsta veturinn í starfi. „Það kom mér verulega á óvart hversu einbeittir menn voru í að fá það samþykkt að hálaunamenn ættu jafn mikið skilið að fá skattalækkun og fátækasta fólkið á vinnumarkaði,“ segir hún.

„Ég barðist líka gegn því að handónýtt ákvæði í frumvarpi til starfskjaralaga, þar sem að sjónarmið Eflingar voru virt að vettugi, yrði að veruleika. Í stað þess að taka sómasamlega á launaþjófnaði var kokkað upp flókið málsmeðferðarferli þar að hallaði á brotaþola í hverju skrefi.“

Hún setur stórt spurningamerki við þetta í ljósi þess að Efling greiðir ASÍ 90 milljónir á ári:

„Eftir að hafa upplifað þetta og ýmislegt fleira (til dæmis þá hneisu þegar að kallaður var með 8 tíma fyrirvara neyðarfundur miðstjórnar Alþýðusambandsins til að veita Icelandair aflátsbréf vegna árásar fyrirtækisins á stéttarfélög og hinn heilaga verkfallsrétt, svo að lífeyrissjóðir vinnuaflsins gætu óhræddir tekið þátt í hlutafjárútboði), þá get ég auðvitað ekki annað en velt því fyrir mér hvað verka og láglaunafólk er að borga fyrir.“