Sólveig Anna segir umræðunni drekkt í bulli: „Enginn hópur fékk meiri prósentuhækkanir en Eflingarfólk“

Sólveig Anna Jónsdóttir, frambjóðandi til formanns Eflingar, segir fréttir um að hún og Ólöf Helga Adolfsdóttir, varaformaður Eflingar, talist ekki lengur við vera dæmi um að umræðunni sé drekkt í bulli.

Mikið mæðir nú á Sólveigu Önnu og lista hennar fyrir komandi kjör í Eflingu. Starfsfólk á skrifstofunni segist óttast að hún komi aftur og nú síðast kom fram í dagsljósið óháð skýrsla sem sýni að Sólveig Anna hafi leitt hjá sér kvartanir vegna framkomu Viðars Þorsteinssonar, þáverandi framkvæmdastjóra. Segir í skýrslunni að hann hafi verið með einelti og kvenfyrirlitningu.

Sólveig Anna er ekki sátt við þessa umræðu og segir: „Það er svo sannarlega magnað að verða vitni að hinum mikla vilja til að drekkja umræðunni um þessar kosningar í bulli um allt nema það sem skiptir máli fyrir verka- og láglaunafólk.“

Hún segist hafa náð sögulegum árangri í að vekja félagið úr svefni. „Ég trúi því að við getum saman gert Eflingu að öflugu baráttutæki verkafólks. Ég trúi því vegna þess að ég hef sjálf séð það gerast,“ segir hún.

Sólveig Anna rifjar upp í færslu á Facebook allt það sem hún hafi áorkað:

„VIð stóðum saman alla þá mörgu mánuði sem að samninganefnd Reykjavíkurborg (leidd af fyrrum hálaunastarfsmanni Eflingar sem sagði upp þegar að ég var kjörinn formaður og réð sig hjá Reykjavíkurborg sem hún hafði eitt mörgum árum í að gera ömurlega samninga við, fyrir hönd láglaunakvenna, á launum hjá þessum sömu láglaunakonum) reyndi að fá okkur til að samþykkja að við ættum að halda áfram að halda kjafti og vera einskis virði þrátt fyrir að vera algjörlega ómissandi í reykvísku samfélagi.“

Hún segir árangur sinn með verkföllum vera staðfestan:

„Og niðurstaðan varð sú að enginn hópur fékk meiri prósentuhækkanir en Eflingarfólk hjá borginni samkvæmt útreikningum kjaratölfræðinefndar sem birtar voru í haust. Það er staðreynd sem enginn getur neitað.“