Sólveig Anna segir af sér: „Ótrú­legt að það sé starfs­fólk Eflingar sem í reynd hrekur mig úr starfi“

Sól­veig Anna Jóns­dóttir hefur sagt af sér sem for­maður Eflingar. Þetta kemur fram í yfir­lýsingu sem hún birti á Face­book-síðu sinni í nú á tólfta tímanum í kvöld. Í yfir­lýsingunni rekur hún á­stæður af­sagnarinnar og segir að í raun hafi starfs­fólk Eflingar hrakið hana úr starfi.

Sól­veig Anna segir að frétta­maður RÚV hafi haft sam­band við hana síðast­liðinn fimmtu­dag í þeim til­gangi að spyrja hana um texta sem trúnaðar­menn starfs­fólks skrif­stofu Eflingar sam­þykktu þann 9. júní og sendu á hana og aðra stjórn­endur.

Segir Sól­veig Anna að í þessum texta hafi hún meðal annars verið sökuð um að halda „af­töku­lista“ og að fremja al­var­leg kjara­samnings­brot gegn starfs­fólki á borð við fyrir­vara­lausar upp­sagnir. Þá sé farið með „furðu­legar“ rang­færslur um starfs­manna­veltu. Textinn hafi verið undir­ritaður af trúnaðar­mönnum og sagður settur fram fyrir hönd starfs­manna.

„Mér var brugðið yfir þessum texta, sem var ekki sann­leikanum sam­kvæmur og að mínu mati skrifaður af miklu dóm­greindar­leysi, en ég blandaði mér þó ekki í þetta mál heldur fól öðrum stjórn­endum að bregðast við, sem þau gerðu hratt og fag­lega. Skrif­leg stað­festing barst frá trúnaðar­manni þar sem málinu var sagt lokið.“

Sól­veig segir að stjórnar­manni í Eflingu, Guð­mundi Baldurs­syni, sem hún hún segir að hafi verið lengi upp­sigað við fé­lagið hafi fengið veður af til­vist þessa texta. Hann hafi sótt það stíft að fá hann af­hentan frá henni.

„Ég taldi mig ekki hafa neina heimild til þess og meiri­hluta stjórnar­manna tóku undir þá af­stöðu með mér. Frekar en að virða trúnað við fé­lagið sem hann er stjórnar­maður í, upp­hóf Guð­mundur í kjöl­farið mikla klögu­mála-her­ferð á vett­vangi Starfs­greina­sam­bandsins og ASÍ til að fá um­ræddan texta af­hentan, en varð þar aftur­reka.“

Í yfir­lýsingu sinni segir Sól­veig Anna að í stað þess að sætta sig við lög og leik­reglur fé­lagsins og verka­lýðs­hreyfingarinnar hafi Guð­mundur á­kveðið að fara með starfs­manna­mál skrif­stofu Eflingar í fjöl­miðla. Segir Sól­veig að það sé á­stæða þess að frétta­maður hafði sam­band við hana á fimmtu­daginn eins og áður sagði.

„Eftir að hafa fengið póst frá frétta­manni á­kvað ég að á­varpa starfs­fólk Eflingar í upp­hafi vinnu­dags á föstu­daginn síðasta, en búið var að á­kveða starfs­manna­fund á þeim tíma. Ég sagði við starfs­fólk á þessum fundi að það væru tveir kostir í stöðunni. Annað hvort kæmi eitt­hvað skrif­legt frá þeim sem myndi bera til baka of­stækis­fullar lýsingar úr á­lyktun trúnaðar­manna og orð sem frétta­maður notaði um „ógnar­stjórn“, eða að ég myndi segja af mér for­mennsku í fé­laginu.“

Sól­veig Anna segir að það hafi ekki verið auð­veld á­kvörðun að stilla þessu upp svona en að hennar mati ó­hjá­kvæmi­legt.

„Starf mitt með fé­lags­fólki Eflingar, sem er rétt­lætis­bar­átta varðandi kjör og að­stæður verka­fólks á vinnu­stöðum, hefur ekki trú­verðug­leika ef trúnaðar­menn starfs­fólks Eflingar eru til­búnir að full­yrða að ég reki hér vinnu­stað jafn slæman eða verri en þeir sem við höfum sjálf gagn­rýnt.“

Sól­veig Anna segist hafa lýst því fyrir starfs­fólki að fjöl­miðlar hefðu áður gert sér mikinn mat úr frá­sögnum fyrrum starfs­manna Eflingar um „meinta glæpi og réttinda­brot“ hennar gegn þeim.

„Slíkar fréttir hafa í­trekað birst á for­síðum blaða og í sjón­varps­fréttum. Mikil orka og tími hefur farið í að verjast þessum á­sökunum. Þessar her­ferðir hafa þannig skilað til­ætluðum árangri jafn­vel þótt engar þeirra hafi verið á rökum reistar, ekki frekar en al­var­legar á­sakanir trúnaðar­manna um af­töku­lista, fyrir­vara­lausar upp­sagnir og fleira.“

Sól­veig segist hafa lýst því að skaðinn sem þetta myndi valda yrði mikill fyrir bar­áttu fé­lagsins og hags­muni fé­lags­manna. Hún gæti ekki sjálf borið til baka þessar á­sakanir, enda settar fram af trúnaðar­mönnum vinnu­staðarins í nafni starfs­fólks. Að­eins starfs­fólk gæti því kveðið upp dóm um rétt­mæti þeirra.

„Ég vék af fundinum á­samt öðrum stjórn­endum og tóku starfs­menn sér tíma fram að há­degi til að bregðast við og ræða saman. Niður­staða fundar þeirra var á­lyktun sem send var til stjórn­enda og önnur á­lyktun til RÚV.“

Sól­veig Anna segir að í þessum á­lyktunum komi fram af­dráttar­laus stað­festing á þeim orðum sem var að finna í á­lyktun trúnaðar­manna frá í júní.

„Talað er á þeim nótum að al­var­leg vanda­mál séu við­varandi sem þurfi að leysa með funda­höldum og öðru. Krafist er aukins valds fyrir trúnaðar­menn vinnu­staðarins og tíðari vinnu­staða­funda, þar sem mögu­leg van­líðan ein­stakra starfs­manna verði fundar­efni. Í yfir­lýsingu til RÚV er jafn­framt engin til­raun gerð til að bera til baka á­sakanir um ógnar­stjórn. Á­lyktanirnar eru van­trausts­yfir­lýsing til mín og til allra þeirra sem bera á­byrgð á starfs­manna­málum vinnu­staðarins.“

Sól­veig segir að and­stæðingar fé­lagsins og þeirrar stefnu sem hún og stjórn fé­lagsins hafa markað í bar­áttu verka- og lág­launa­fólks séu margar. Með á­kvörðun starfs­fólk Eflingar síðast­liðinn föstu­dag um að standa stað­fast­lega við „ýktar og ó­sann­gjarnar lýsingar trúnaðar­manna á vinnu­staðnum“ sem hún ber á­byrgð á hafi starfs­fólk í reynd gefið sam­þykki sitt fyrir á­fram­haldandi nei­kvæðri um­fjöllun og um­ræðu sem gerir henni ill­mögu­legt að leiða bar­áttu fé­lags­fólks.

„Ég kýs að út­setja mig ekki fyrir slíka út­reið enn á ný, með til­heyrandi skaða fyrir bar­áttu Eflingar og Eflingar­fé­laga. Fremur kýs ég að hlíta þeirri af­dráttar­lausu van­trausts­yfir­lýsingu sem starfs­fólk Eflingar hefur sent mér, fé­laginu og fjöl­miðlum, sem gera starf mitt ó­mögu­legt. Ég get ekki gegnt stöðu formanns í fé­laginu að svo komnu máli og hef ég til­kynnt stjórn Eflingar um af­sögn mína.“

Sól­veig segist vera miður sín vegna málsins.

„Mér þykir það ó­trú­legt að það sé starfs­fólk Eflingar sem í reynd hrekur mig úr starfi, með því að leyfa and­stæðingum fé­lagsins að hossa sér á ýkjum, lygum og rang­færslum um mig og sam­verka­fólk mitt. Starfs­fólk Eflingar hefur kosið að svipta mig því vopni sem hefur gert mér mögu­legt að leiða sögu­lega og árangurs­ríka bar­áttu verka- og lág­launa­fólks síðustu ár, mann­orði mínu og trú­verðug­leika.“

Í lok yfir­lýsingarinnar segist Sól­veig Anna vera full af þakk­læti yfir því að hafa verið treyst af fé­lags­fólki Eflingar til að leiða bar­áttu fé­lagsins og stolt af þeim árangri sem fé­lagið hefur náð á þeim stutta tíma sem hún hef verið for­maður fé­lagsins.

„Bar­átta Eflingar­fé­laga undan­farin ár hefur sýnt og sannað að með krafti og sam­stöðu vinnu­aflsins þá náum við árangri. Með þau vopn í höndum getum við tekist á við allan mót­byr sama hversu ó­heiðar­legir og ó­merki­legir and­stæðingar okkar eru, hvar sem þeir leynast. Ég mun aldrei hætta í bar­áttu fyrir rétt­læti fyrir okkur sem til­heyrum stétt verka- og lág­launa­fólks og þekkja lífið undir oki auð­valds­kerfisins og lág­launa­stefnunnar.“