Sólveig Anna Jónsdóttir, fyrrverandi formaður Eflingar og oddviti Baráttulistans í komandi kosningum innan verkalýðsfélagsins, segir að á morgun verði starfsmenn innan félaga sem eiga aðild að Alþýðusambandinu kallaðir á fund til að samþykkja ályktun gegn sér til stuðnings starfsfólki skrifstofu Eflingar.
Í færslu sem Sólveig Anna skrifar á Facebook í kvöld segir hún að skrifstofustjóri Eflingar og fjármálastjóri hafi beitt sér gegn sér innan ASÍ með því að senda bréf á valdafólk þar innandyra til að grafa undan sér.
„Hversvegna fóru þau fram með þessum hætti? Jú, vegna þess að ég hafði framið glæpinn að sigra þeirra frambjóðanda í kosningum, manninn sem hefði ekki hróflað við neinu í starfsemi félagsins, og vegna þess að ég féllst ekki á að opna sjóði Eflingar svo að þau gætu skammtað sér það sem þau töldu sig eiga heimtingu á.“
Sólveig heldur áfram:
„Ástæðan fyrir því að ég rifja þetta upp hér er sú að mér hefur borist til eyrna að á morgun eigi að halda sérstakan fund starfsfólks þeirra félaga sem eiga aðild að ASÍ. Og að tilgangur fundarins sé að samþykkja og senda frá sér ályktun til stuðnings starfsfólki skrifstofu Eflingar, og gegn mér og framboði Baráttulistans til stjórnar félagsins.“
Ályktuna á svo að senda á fjölmiðla:
„Ég hef heyrt að starfsfólk Eflingar sé mjög áfram um að slík ályktun verði skrifuð og send til fjölmiðla á morgun. Hinn daginn hefst svo kosninginn til formanns og stjórnar félagsins.“
Sólveig segir að útspilið á morgun sé mjög gróft:
„Það er margt að í samfélaginu okkar. Eitt af því er hið magnaða og hömlulausa virðingarleysi sem ríkir gagnvart verkafólki. Sem birtist út um allt, og nú í framferði þeirra sem hafa krýnt sjálfa sig eigendur hreyfingar vinnandi fólks. Þau telja sig ekki einu sinni þurfa að bera að virðingu fyrir því að kosningar eru að hefjast í langstærsta félagi verka og láglaunafólks, kosningar sem munu móta framtíð baráttu þessa fjölmenna hóps og því hvaða árangur er mögulegur. Þau eiga “hreyfinguna” og eignarhald þeirra er ofar öllu öðru.“