Sól­veig Anna ó­sátt við mynd Katrínar: Ekki við hæfi þegar fólk er í lífs­hættu eftir skelfi­legan elds­voða

Sól­veig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, gagn­rýnir Katrínu Jakobs­dóttur for­sætis­ráð­herra fyrir að birta mynd af sér í gær­kvöldi skæl­brosandi þar sem hún fagnar Eng­lands­meistara­titli Liver­pool. Bendir Sól­veig á að nokkrum klukku­stundum áður hafi orðið al­var­legur elds­voði í mið­borginni, en eins og greint var frá í morgun létust þrír í brunanum.

Í færslu sinni í gær­kvöldi óskaði Katrín liðs­mönnum Liver­pool, eða „strákunum mínum“ eins og hún orðaði það til hamingju með titilinn. Hún skrifaði á ensku: „Finally! Congra­tulations my dear boys and Klopp and to us all! Lets all remem­ber to keep walking on with hope in our hearts!“

„Kannski er ó­við­eig­andi af mér að vera að pæla í þessu eða skrifa um þetta hér en ég ætla samt að gera það. Að sjálf­sögðu má for­sætis­ráð­herra skrifa færslu á Twitter um á­huga­mál sín en í ljósi at­burða gær­dagsins hefði verið eðli­legra að hátt­settasta stjórn­mála­manneskja lýð­veldisins skrifaði færslu um þann harm­leik sem átti sér stað, ef hún á annað borð var að nota Twitter,“ segir Sól­veig Anna á Facebook.

Hún heldur á­fram:

„Mér finnst ekki við hæfi að for­sætis­ráð­herra birti færslu um fót­bolta­leik þegar að fólk er slasað og í lífs­hættu eftir skelfi­legan elds­voða, en þannig var staðan í gær­kvöldi, og þegar slökkvi­liðs­fólk hefur lagt sig í mikla hættu við að reyna að bjarga þeim sem föst voru inn í húsinu. Ég tel að það væri betra og raun­veru­lega við hæfi eftir at­burði sem þessa að fólk sem fer með völd léti okkur vita að það skildi að undir fal­legu yfir­borði þessa lands eru skelfi­leg sam­fé­lags­leg vanda­mál sem hafa fengið að grassera meira og minna ó­á­reitt. Það er svo löngu tíma­bært að það gerist.“

Sól­veig Anna segir að í okkar nor­ræna vel­ferðar­sam­fé­lagi sé fullt af jaðar­settu fólki sem lifir í ver­öld þar sem allt önnur lög­mál gilda en þau sem talað er fjálg­lega um við öll opin­ber tæki­færi.

„Þetta fólk á það líka skilið að ráða­mann­eskjur hér viður­kenni til­vist þeirra. Fólkið í ó­í­búðar­hæfu húsunum og iðnaðar­húsunum þarf mest á því að halda af öllum að með þeim sé staðið af þeim sem geta sannar­lega breytt sam­fé­laginu, og til­vera þeirra gerð mann­sæmandi og góð. Að­búnaður sá sem þessu fólki er boðið upp á er til skammar fyrir valda­stéttina,“ segir Sól­veig Anna en margir fé­lags­menn Eflingar er að­flutt verka­fólk.

Sól­veig segir að skil­yrðin sem farand­verka­fólki eru búin á ís­lenskum vinnu­markaði séu til skammar fyrir valda­stéttina. Þá tekur hún undir orð Drífu Snæ­dal, for­seta ASÍ, sem sagði að meira púður færi í að elta uppi verka­fólk en taka á glæpa­mönnum og ó­heiðar­legum at­vinnu­rek­endum sem nýta sér bága stöðu er­lends verka­fólks.

„Sér­stakur bíll fer um og hrellir jaðar­setta verka­menn á meðan að at­vinnu­rek­endur sem nýta sér bága stöðu þessa hóps fá bók­staf­lega frítt spil. Þess vegna leyfi ég mér hér að gagn­rýna mynd­birtinguna og á­hersluna sem hún sýnir. Ég er komin með nóg af yfir­borðs­kenndri stemmningu um að við séum öll í þessu saman og að allt sér hér frá­bært. Ég vil að við fókuserum á og tölum um það sem máli skiptir. Það er löngu tíma­bært.“