„Þvílík skömm. Fólk hefur unnið á lágmarkslaunum og knúið áfram hjól atvinnulífsins og hagvöxtinn sem skilað hefur stórkostlegum gróða fyrir einstaka kapítalista. Nú eru þessar manneskjur látnar standa í röð til að fá mat fyrir sig og börnin sín.“
Þetta segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, í færslu á Facebook-síðu sinni. Þar gerir hún frétt sem birtist í kvöldfréttum RÚV í gærkvöldi að umtalsefni en þar var fjallað um mikla eftirspurn eftir aðstoð hjá Fjölskylduhjálp Íslands. 50 manns voru mættir í röð fyrir utan húsakynni Fjölskylduhjálparinnar á Suðurnesjum á fimmtudag, hálftíma áður en opnað var fyrir matarúthlutun.
Eru það að nokkrum hluta einstaklingar af erlendum uppruna, sem hafa komið til Íslands til að vinna, sem þurfa á aðstoð að halda. Sumir þeirra hafa misst vinnuna í því ástandi sem nú ríkir og ekki fundið aðra vinnu.
„Þetta fólk hefur ekki getað lagt neitt fyrir eða eignast sitt eigið húsnæði; þegar þú stritar fyrir lágmarkslaun áttu aldrei neitt eftir. Því sem næst allar ráðstöfunartekjur hafa farið í svívirðilegan húsnæðiskostnað á gróðavæddum húsnæðismarkaði á einu dýrasta landi í heimi,“ segir Sólveig Anna sem kveðst vera miður sín yfir þessu ástandi.
„Og það er ótrúlegt að hugsa til þess að Samtök atvinnulífsins ætli, á þessari erfiðu stundu, í stríð við hreyfingu vinnandi fólks á Íslandi, í stað þess að sýna örlitla auðmýkt og viðurkenna að láglaunafólkið hefur verið látið axla endalausar byrðar, og það er einstaklega tímabært að mæta því og fulltrúum þeirra með útrétta sáttarhönd. Einstaklega tímabært að byrja að vinna að einhverju sem kalla mætti í það minnsta tilraun til efnahagslegs réttlætis.“
Í frétt RÚV var rætt við einstæða þriggja barna móður frá Póllandi, Kasiu, sem missti vinnuna fyrir fjórum mánuðum. „Áður var ég í vinnu og fékk nóg laun til að ná endum saman. Nú er það erfitt, ekki bara vegna Covid. Ég er að leita að vinnu en það er mjög erfitt. Ég þarf að borga leigu og margt annað. Þetta er erfitt,“ sagði hún í frétt RÚV.