Sól­veig Anna meyr eftir um­mæli Bubba: „Takk kæri Bubbi“

Sól­veig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, er afar þakk­lát fyrir bar­áttu­kveðjurnar sem tón­listar­maðurinn Bubbi Morthens sendi henni meðan hann var í sófanum hjá Gísla Marteini á RÚV í gær­kvöldi.

„Takk kæri Bubbi fyrir að láta þessi góðu stuðnings­orð falla í þættinum hjá Gísla Marteini í gær­kvöldi,“ skrifar Sól­veig Anna og vitnar svo í orð Bubba:

„Að því sögðu þá styð ég bar­áttu Eflingar heils­hugar. Mér finnst það alveg með ó­líkindum að við þurfum að vera að fara í verk­föll vegna þess að það er fólk sem getur ekki lifað af laununum sínum. Og ef að Sól­veig Anna væri í mínu liði og ég væri að fara í bar­áttu þá myndi ég setja hana fremst í fylkingar­brjóst því ég hugsaði þetta er besti bar­daga­maður sem að ég hef séð. En ef ég þyrfti svo að semja við and­stæðinginn þá myndi ég segja þú kemur ekki inn í her­bergið.“

Sól­veig Birti mynd af sér með gjallar­horni með fræslunni eins og sjá má hér að neðan