Ef það tekst að koma kjörkassa Eflingar yfir Hellisheiði í kvöld mun liggja fyrir, fyrir kl. 22, hver verður næsti formaður Eflingar. Kjörstöðum lokar kl. 20 í kvöld og hafa margir félagsmenn fengið smáskilaboð í dag um að muna eftir að kjósa.
Eflingarlisti Ólafar Helgu Adolfsdóttur birti grein á Facebook þar sem skotið var á Sólveigu Önnu Jónsdóttur og Baráttulistann. Um var að ræða grein eftir stuðningsmanna Ólafar þar sem lýst var vonbrigðum með aðgerðir Sólveigar, sérstaklega þegar kemur að launaþjófnaði.
„Þetta lýsir svo mikilli vanþekkingu eða vilja til að draga upp falska mynd að ég fæ ekki orða bundist,“ segir Sólveig Anna á Facebook í dag.
Undir hennar forystu hafi Efling beitt sér markvisst gegn slíku.
„Allt þetta hlýtur Ólöf Helga að vita. Hún var meðlimur í stjórn og er þar af leiðandi með persónulega vitneskju um þann mikla og einbeitta áhuga sem ég hafði á málinu og hversu mikinn “árásarham” ég virkjaði til að berjast fyrir því að sá ólíðandi og siðlausi launaþjófnaður sem verka og láglaunafólk, sérstaklega aðflutt fólk, þarf að búa við, yrði ekki lengur sjálfsagður hluti af íslenskum vinnumarkaði,“ segir Sólveig:
„Það er leitt að sjá að áróður fullur af rangfærslum um baráttu síðustu ára skuli eiga svona auðvelt með að fá pláss hjá Ólöfu Helgu.“