Sólveig Anna lætur þær heyra það: „Tvær konur, að­eins með hæfi­leika til eins“

„Tvær konur, að­eins með hæfi­leika til eins, að láta etja sér á foraðið. Aftur og aftur,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, um þær Agnieszku Ewu Ziólkowsku, vara­for­mann Eflingar, og Ólöfu Helgu Adolfs­dóttur, ritara fé­lagsins.

Sólveig Anna birti færslu á Facebook-síðu sinni í gær­kvöldi í kjölfar færslu sem Agnieszka birti áður. Í færslunni, sem mbl.is, vann meðal annars frétt upp úr sagði Agnieszka að ekkert í reglum Eflingar hindraði það að félagsmenn fengju greitt í tilviki verk­banns.

Eins og greint var frá síðdegis í gær samþykkti yfir­gnæfandi meiri­hluti aðildar­fé­laga Sam­taka at­vinnu­lífsins verk­bann á fé­lags­fólk Eflingar. Mun það að ó­breyttu hefjast þann 2. mars næst­komandi.

Í færslu sinni birti Agnieszka skjá­skot af reglu­gerð vinnu­deilu­sjóðs Eflingar og sagði:

„Hér höfum við reglu­gerð vinnu­deilu­sjóðs Eflingar. Fé­lagar í Eflingu eiga rétt á því að vita að reglur fé­lagsins eru ekki að hindra for­mann þeirra í að greiða úr sjóðnum í til­viki verk­bannsins. Það er einungis hennar á­kvörðun. Hún er þess í stað til­búin að láta láglaunaða fé­lags­menn sína þjást.“

Sól­veig Anna svaraði Agnieszku fullum hálsi í færslu og lét Ólöfu Helgu einnig finna fyrir því.

„Aumingja Agnieszka Ewa og Ólöf Helga. Þær ætluðu sér stóra hluti í verka­lýðs­hreyfingunni. Ætluðu að stýra Eflingu og sjálfu Al­þýðu­sam­bandinu. Hvattar til dáða af SGS-formanna-hirðinni og hinum og þessum innan úr skrif­stofu­virkinu. Og svo auð­vitað ís­lensku auð­valdi og á­róðurs­riti þess, Morgun­blaðinu. Og hinum dug­lausu og erindis­lausu hægri-krötum sem skilja af­skap­lega fátt í ver­öldinni, efna­hags­lega rétt­lætis­bar­áttu vinnu­aflsins minnst af öllu.“

Sól­veig Anna hélt áfram og sagði þær Agnieszku og Ólöfu Helgu ekki hafa neina skyn­semi eða stéttar­vitund.

„Tvær konur, að­eins með hæfi­leika til eins, að láta etja sér á foraðið. Aftur og aftur. Nú til að breiða út boð­skap fagnaðar­erindis Hall­dórs Benja­míns um að for­ysta Eflingar skuli hlýða trylltri auð­stétt og tæma verk­falls­sjóð fé­lagsins ein­fald­lega vegna þess að sturlaður léns­herrann skipar henni það. Já, aumingja þessar konur. Það eru hræði­leg ör­lög að hafa engan sið­ferðis­átta­vita, enga skyn­semi og enga stéttar­vitund. Ekkert sem nær að stoppa sjúka þörfina fyrir at­hygli og strokur valda­stéttarinnar. Það er ekki annað hægt en að upp­lifa vor­kunn með mann­eskjum sem að opin­bera sig sem ekkert annað en auð­virði­lega út­sendara verstu ó­vina vinnandi fólks á landinu.“

Hér að neðan má sjá færslur þeirra Sólveigar Önnu og Agnieszku Ewu: