Sólveig Anna kölluð öllum illum nöfnum: Sá nýtt uppnefni í gær sem hún hreifst sérstaklega af

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, er orðin býsna vön því að vera á milli tannanna á fólki. Síðan hún var fyrst kjörin formaður Eflingar árið 2018 hefur hún, að eigin sögn, verið köllum bókstaflega öllum illum nöfnum. Hún heyrði þó nýtt uppnefni á dögunum sem hún hreifst mjög af.

„Ég fór úr leikskólanum þar sem blessuð börnin kölluðu mig m.a. Lólu, Donnu, og Salad yfir í aðra veröld þar sem ég fékk skyndilega status í hugum fjölmargra manna sem andstyggileg kvensnift til að hata, fyrirlíta og svívirða.“

Í færslu á Facebook segir Sólveig Anna að á þessum árum sem liðin eru hafi hugmyndaauðgi uppnefnaranna svokölluðu spannað allan skalann og nefnir hún nokkur dæmi.

„Þjófur, geðveik, fífl, kellingarbeygla, pjúra lygari (það kallaði ný hetja miðstjórnar Alþýðusambandsins mig í einka-skilaboðum til ókunnugra manna úti bæ í samstöðu sinni með manni sem hafði gerst sekur um grófa ofbeldishótun gagnvart mér) yfir í uppátækjasamari nálganir; Pútína finnst mér dæmi um sérlega vel heppnað uppnefni, blanda af því að kalla mig einvald og pútu.“

Hún rak svo augun í nýja orðið í gær og útilokar ekki að fá sér bol með nýja uppnefninu.

„Rétt áðan sá ég svo mann kalla mig nýju og frábæru uppnefni: FREKJUGEIT. Þessi FREKJUGEIT, alltaf eitthvað að frekjast. Ég er að pæla í að fá mér bol ("ef þeir vilja beef, þá set ég það á bol"...?) með mynd af geit og þessum texta: FREKJUGEITUR; fram til sigurs!“