Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hélt einskonar kosningavöku á heimili sínu í nótt vegna bandarísku forsetakosninganna. Eðli málsins samkvæmt var þetta ekki fjölmenn kosningavaka enda afar strangar samkomutakmarkanir í gildi.
Sólveig segir frá því á Facebook-síðu sinni að hún hafi farið í gærkvöldi í Hagkaup í Skeifunni og keypt tónik og tvö lime. Þegar hún kom á kassann tók hress starfsmaður á móti henni. Gefum Sólveigu Önnu orðið:
„Drengurinn á kassanum æpti á mig rosa glaður í gegnum grímuna sína: „Á að fara að djamma? Má það?“ Hehe hló ég vandræðalega, hehehe. Gott að ég var með grímu.“
Sólveig Anna birti svo myndir af kræsingunum sem boðið var upp á í kosningavökunni. Óhætt er að segja að þar hafi ýmislegt góðgæti verið á boðstólnum.