Sólveig Anna hló að Guðmundi í Kastljósi: „Óbærilega ógeðslegur“

Sólveig Anna Jónsdóttir, sem sagði af sér sem formaður Eflingar á sunnudagskvöld, segir að hún hafi hlegið að Guðmundi Baldurssyni, stjórnarmanni í Eflingu, þegar hann krafði

Agnieszku Ewu Ziólkowska, varaformann Eflingar, um afsögn.

„ Mér var vissulega ekki hlátur í hug en ég gat þó ekki annað en hlegið agnarsmáum hlátri þegar Guðmundur lét þessi orð falla. Ég hugsaði um "afrekalista" hans í störfum fyrir félagið og fólkið sem tilheyrir því, og svo hvað Agnieszka hefur gert og þessvegna hló ég í örskamma stund,“ segir hún á Facebook. „Fáránleiki þess að þessi maður væri að krefjast þess að hún léti sig hverfa var svo yfirgengilegur. En auðvitað fyrst og síðast svo óbærilega ógeðslegur.“

Sólveig Anna segir Agnieszku hafa staðið sig með sóma:

„Áður var hún trúnaðarmaður árum saman og barðist gegn launaþjófnaði og óboðlegum aðstæðum, svo sem engri salernisaðstöðu,“ segir hún. „Hún þekkir allt það svívirðilega rugl sem viðgengst gagnvart aðfluttu verkafólki á eigin skinni. Allt.“

Hún lætur Guðmund heyra það:

„Um það bil helmingur félagsfólks Eflingar er aðflutt fólk. Í fyrsta skipti er í ábyrgðarhlutverki manneskja sem tilheyrir þeim hópi, manneskja sem berst fyrir þennan hóp af öllu hjarta, alla leið. Og svo dirfist einhver maður að segja henni að láta sig hverfa. Ég myndi leggja til að hann skammaðist sín en ég veit af mikilli reynslu að það kann ekki.“