Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hefur svarað Drífu Snædal, sem sagði af sér sem forseti ASÍ í morgun, fullum hálsi í pistli sem hún birti á Facebook-síðu sinni nú á tólfta tímanum.
Afsögn Drífu vakti furðu margra en í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér kemur fram að óbærileg átök innan stjórnar ASÍ séu ástæða afsagnarinnar. Gagnrýndi hún meðal annars hópuppsögn á skrifstofu Eflingar fyrr á árinu og sagðist hreinlega ekki treysta sér til að vinna með fólki sem hún á ekki samleið með.
Pólitíska stundaglasið tæmdist
„Það er leitt að Drífa Snædal hafi notað tækifærið, um leið og hún tilkynnti tímabæra afsögn sína, til að hnýta með ómálefnalegum hætti í mig og stjórn Eflingar. Drífa veit sjálf að það er langt um liðið síðan grafa fór undan trúverðugleika hennar og stuðningi í baklandi verkalýðshreyfingarinnar. Það hefur ekkert með innri mál Eflingar að gera, þó svo að Drífa hafi ákveðið að blanda sér í þau, hugsanlega vegna þess að hún hélt að það yrði sér til framdráttar þegar hún sá sitt pólitíska stundaglas tæmast,“ segir Sólveig Anna í yfirlýsingu sinni.
Hún segir að Drífa tali um blokkamyndun en staðreyndin sé sú að Drífa kaus sjálf að loka sig inni í blokk með nánasta samstarfsfólki forvera síns, Gylfa Arnbjörnssonar, og stétt sérfræðinga og efri millistéttarfólks sem ræður ríkjum í stofnunum ríkisvaldsins á Íslandi og á skrifstofum Alþýðusambandsins.
Baklandið í íhaldsarminum
„Uppruni, bakland og stuðningshópar Drífu voru í stofnana-pólitík og í íhaldsarmi verkalýðshreyfingarinnar, hjá fólki eins og Halldóru Sveinsdóttur formanni Bárunnar. Drífa gat aldrei stutt við það umbreytingaverkefni og endurnýjun sem ég, Ragnar Þór Ingólfsson og Vilhjálmur Birgisson höfum leitt með stuðningi mikils fjölda félagsfólks í okkar félögum um land allt. Það er staðreynd.“
Sólveig Anna gefur einnig lítið fyrir fullyrðingu Drífu um að hún hafi aldrei vílað fyrir sér að taka slaginn gagnvart stjórnvöldum.
„Því miður er það ekki rétt eins og fjöldi dæma sýnir. Drífa Snædal vildi semja við ríkisstjórnina og SA um að hafa af verka- og láglaunafólki umsamdar launahækkanir í kórónaveirukreppunni. Og það hefði orðið raunin ef ekki hefði verið fyrir andstöðu Eflingar. Drífa vildi heldur ekki "taka slaginn" þegar Icelandair braut lög um stéttarfélög og vinnudeilur til að nauðbeygja flugfreyjur í miðri kjaradeilu - hún stöðvaði málssókn fyrir Félagsdómi og undirritaði þess í stað skammarlega hvítþvottaryfirlýsingu. Drífa tók heldur ekki slaginn um viðurlög gegn launaþjófnaði, heldur reyndi í tvígang að bera á borð fyrir aðildarfélög ASÍ handónýta lagasetningu þar sem staða fórnarlamba launaþjófnaðar hefði orðið verri en hún er nú.“
Segir Drífu hafa samið í skjóli nætur
Þá segir Sólveig Anna að Drífa tali um baráttuanda og að hún njóti stuðnings. Staðreyndin sé allt önnur. Þannig hafi hún samið í skjóli nætur við ríkisstjórnina vorið 2019 um að „neyða vinnandi fólk“ inn í nýja útgáfu af Salek-samkomulaginu, sem hét núna Grænbók.
„Einu gilti þótt að verkafólk á Íslandi hafi margítrekað hafnað Salek-hugmyndafræðinni. Ef ekki hefði verið fyrir andstöðu Eflingarfélaga og breytingaaflanna innan verkalýðshreyfingarinnar hefði Grænbókarvinnnan haldið áfram, og við værum grafin enn dýpra en við erum nú þegar í fen sérfræðingaveldis Þjóðhagsráðs - en það var einmitt síðasta verk Drífu í fréttum í gær að taka upp hanskann fyrir Þjóðhagsráð.“
Sólveig Anna endar gagnrýni sína á að segja að vinnubrögð Drífu hafi verið lokuð, andlýðræðisleg og iðulega vakið undrun og gagnrýni, langt út fyrir raðir VR og Eflingar.
„Í málefnum vinnumarkaðarins voru nánustu félagar Drífu formenn BSRB og BHM. Hún hafði ekki áhuga á að hlusta á raddir forystu stærstu félaganna innan vébanda ASÍ.
Alþýðusambandinu undir stjórn Drífu Snædal mistókst með öllu að laga áherslur og starf sambandsins að þeim miklu breytingum sem urðu í stærstu aðildarfélögum sambandsins á árunum 2017-2018 og standa ennþá yfir. Leiðtogar eiga að hlusta á vilja þeirra sem þeir eiga umboð sitt undir. Það hefði Drífa Snædal getað gert á fyrri stigum en kaus að gera ekki.“