Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóra Kópavogs, ekki vilja ræða sem vinna við að ræsta skólana og bæjarskrifstofur því það „henti honum ekki að semja við þær um smávegis leiðréttingu“.
„Laun skólaliða í Kópavogi eru sem stendur þessi:
Byrjunarlaun: 320.686 kr.
Eftir eitt ár í starfi: 327.100 kr.
Eftir fimm ár í starfi: 333.513 kr.
Eftir níu ár í starfi: 339.927 kr.
Eftir 15 ár í starfi: 346.341 kr.
Laun Ármanns Kr. Ólafssonar, bæjastjóra Kópavogs hækkuðu á milli áranna 2016 og 2017 um 32,7 % eða sem nemur 612.000 krónum á mánuði. Árið 2018 fékk Ármann 2,5 milljónir á mánuði í laun. Samkvæmt Wikipediu var Ármann með næsthæstu laun af öllum bæjar og borgarstjórum í öllum heiminum árið 2018,“ segir Sólveig Anna á Facebook.
„Bæjarstjóri Kópavogs vill að konurnar sem vinna við að ræsta skólana og bæjarskrifstofur mæti í vinnuna, samningslausar af því að það hentar honum ekki að semja við þær um smávegis leiðréttingu. Hann neitar að ræða við okkur. Samninganefnd SÍS vill ekki funda með Eflingu. Neitar að ræða útfærslur. Fyrsta apríl hefur félagsfólk Eflingar verið samningslaust í heilt ár.
Segið mér: Hver hafa gerst sek um "óábyrga" og "forkastanlega" afstöðu? Við, sem viljum aðeins að samningar verði kláraðir við okkur á sömu forsendum og gert var við Reykjavíkurborg og ríkið, eða forrystusveit Sambands sveitarfélaganna?“