Sólveig Anna: Fúskarar níðast á láglaunafólki

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að leigumarkaðurinn hér á landi sé stjórnlaus og gróðavæddur og það hafi ótal slæmar afleiðingar í för með sér.

Í færslu á Facebook-síðu sinni vísar Sólveig Anna í nýjustu Kjarafréttir Eflingar þar sem meðal annars kemur fram að á síðustu tíu árum hafi leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 102 prósent. Stór hópur leigjenda sé að greiða fáránlega hátt hlutfall ráðstöfunartekna sinna í þennan útgjaldalið. Og þegar hann hækkar svona mikið þá séu áhrifin skelfileg.

„Stjórnlaus og algróðavæddur leigumarkaður hefur ótal slæmar hliðarafleiðingar. Hann neyðir fjölskyldur til að flytja milli hverfa og jafnvel landshluta, með tilheyrandi streitu og rótleysi fyrir bæði foreldra og börn. Hann neyðir farandverkafólk til að dveljast í atvinnuhúsnæði, hreysum og eins konar verbúðum sem starfsmannaleigur hafa komið á fót,“ segir Sólveig Anna.

Hún segir að bruninn skelfilegi á Bræðraborgarstíg sumarið 2020 hafi verið bein afleiðing af þessu grimmilega ástandi og hræðilegur minnisvarði um hvað það kostar að aðhafast ekkert.

„Það kostar bókstaflega mannslíf. Hvert á fólk að snúa sér þegar það er augljóst að tekjurnar duga ekki til að leigja húsnæði sem er mannfólki bjóðandi? Búið er að skapa ástand sem fúskarar nýta sér til að níðast á láglaunafólki, sérstaklega verkafólki af erlendum uppruna.“

Sólveig Anna segir að ein stærstu svik ríkisstjórnarinnar við vinnandi fólk í kjölfar Lífskjarasamninganna 2019 hafi verið að standa ekki við loforð um leigubremsu. Búið hafi verið að smíða drög að frumvarpi sem hefðu sett takmarkanir á hækkanir leiguverðs og það hafi meira að segja komið í Samráðsgáttina. Síðan hafi málið verið svæft fyrir tilstilli sérhagsmunaafla og liggi nú dautt inni á gólfi í einhverju ráðuneyti.

„Ótrúlegar hækkanir á húsnæðisverði síðustu misseri og endurkoma ferðaþjónustunnar eru strax byrjuð að þrýsta upp leiguverði á nýjan leik. Neyðarástand er í uppsiglingu, sem er augljóst að þarf að taka mjög föstum tökum og verður forgangsmál í komandi kjaraviðræðum.“