Sól­veig Anna eftir seinni CO­VID-sprautuna: „Því­líkt kvöld og nótt sem ég átti“

Sól­veig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, fékk seinni Pfizer-sprautuna í gær. Segja má að hún hafi farið í súrrealískt ferða­lag í kjöl­farið þar sem vatns­renni­brautir komu nokkuð við sögu.

„Ég fékk seinni Pfizer sprautuna í gær. Og því­líkt kvöld og nótt sem ég átti. Byrjaði með léttum undar­leg­heitum í augum. Svo tók við mikið kvef í nokkra tíma. Þá kom hæsi og svo innri hita­bylgja sem fjaraði út þegar kaldari vindar tóku að blása. Á meðan á­gerðust sí­fellt ýmsir bein­verkir; í hnjám og öxlum en svo fyrst og fremst mikill bein­verkja­ákafi í mjaðma­grind, spjald­hrygg og rófu­beini,“ segir hún.

Hún segir að eigin­maður hennar, Magnús Sveinn Helga­son, hafi stungið upp á því fljót­lega að þau færu snemma að sofa sem þau og gerðu.

„Eftir að ég sofnaði vaknaði ég fljót­lega og höfðu þá bein­verkir að mestu horfið en í stað þeirra miklir maga­verkir og hiti í fótum. Ég vakti og svaf til skiptis og hafði ólgandi draum­farir, aðal­lega um vatns­renni­brautir en á þeim hef ég mikla ó­beit. Þessum draum­förum fylgdi ákafur munn­þurrkur og þorsti,“ segir hún.

Í færslu sinni á Face­book í morgun tók Sól­veig Anna fram að hún væri með æðis­gengnar harð­sperrur í aftari hluta líkamans og hnjám. Segir hún engu líkara en að hún hafi hlaupið aftur og aftur upp stiga til að geta rennt sér niður vatns­renni­braut líkt og raunin var í drauminum.

Sól­veig Anna hvatti fylgj­endur sína til að segja frá ef þeir könnuðust við lýsingar hennar. Skemmst er frá því að segja að margir þeirra könnuðust við líkam­legu ein­kennin þó vatns­renni­brautir hafi að vísu ekki komið við sögu hjá þeim.