Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, fjallar um leigumarkaðinn í færslu sem birtist á Facebook-síðu hennar í gær. Þar lýsir hún því að þegar fólk fer á leigumarkaðinn hverfi gjarnan draumurinn um að fólk geti komist í eigið húsnæði.
„Fjöldi verka og láglaunafólks er fast á leigumarkaði. Þar þurfa þau að afhenda stóran hluta af sínum ráðstöfunartekjum til að fá aðgang að þaki yfir höfuðið. Af því leiðir að þau geta ekki lagt fyrir og um hver mánaðamót fjarlægist draumurinn um að komast í eigið húsnæði. Sama hversu mikið er stritað. Verst er staðan hjá þeim sem leigja hjá einkareknum leigufélögum en eins og lesa má í sjötta tölublaði Kjarafrétta Eflingar greiða 31% leigjenda hjá þessum leigufélögum 50-69% sinna ráðstöfunartekna í leigu og 13% eru í þeirri sjúku stöðu að þurfa að afhenda 70% eða meira af ráðstöfunartekjum til kapítalista út í bæ.“
Sólveig veltir síðan fyrir sér hvað stjórnvöld séu að gera í málinu og setur stórt spurningarmerki við að ekki sé innleitt leiguþak sem myndi tempra hæstu kröfur leigusala. Hún telur ástæðuna fyrir þessu vera skuldbindingu valdafólks við eignastéttina.
„Hver er afstaða pólitískrar valdastéttar til þessa „málaflokks“? Jú, hún er einfaldlega þessi: Valdastéttin tekur afdráttarlausa afstöðu með eignastéttinni. Hún hefur ekki áhuga á að gerast einhverskonar milligöngu-aðili með því að innleiða til dæmis leiguþak sem gæti í það minnsta temprað yfirgengilegustu gróða-áform kapítalistanna, hvað þá lausna-aðili með pólitíska getu og vilja til að ráðast samstundis í metnaðarfulla uppbyggingu á húsnæði fyrir vinnuaflið. Hún hefur ekki áhuga á að útbúa raunverulegt stuðningskerfi sem gerir raunverulegt fjárhagslegt gagn; nýjar tillögur um húsnæðisstuðning til heimila stangast á við markmið Fjármálaáætlunar stjórnvalda en þar er gert ráð fyrir LÆKKUN á húsnæðisstuðningi á komandi árum. Valdastéttin er skuldbundin eignastéttinni og húsnæði vinnuaflsins er orðið að dýrmætri gróða-uppsprettu fyrir auðvaldið. Því setur valdastéttin fram tillögur en gætir þess að láta ekki beinar skuldbindingar um fjármögnun fylgja. Eins og fjármálaráðherra orðaði það: Það þarf að gæta þess að fikta ekki of mikið í hlutunum...“
Í lok færslu sinnar segir Sólveig að eina leiðin til að eina leiðin til að breyta þessu sé að vinnuaflið taki sig saman og berjist gegn núverandi ástandi á leigumarkaði.
„Ekkert mun breyta afstöðu valdastéttarinnar nema samstaða og einbeittur baráttuvilji vinnuaflsins og hinna eignalausu. Það eru hin raunverulegu hreyfiöfl jákvæðra samfélagslegra breytinga. Það er eina samfélagslega valdið sem er nægilega máttugt til að einfaldlega neyða valdastéttina til að hegða sér með sómasamlegum hætti og taka réttar ákvarðanir.“