Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, er þekkt fyrir flest annað en að liggja á skoðunum sínum. Hún lét Ragnar Önundarson, fyrrverandi bankastjóra, heyra það á Facebook-síðu sinni í morgun þegar hann dirfðist til að beina ákveðnum tilmælum að henni.
Forsaga málsins er sú að Sólveig Anna deildi skjáskoti af umfjöllun Stundarinnar þar sem hún gagnrýnir Guðna Th. Jóhanesson, forseta Íslands, fyrir að leigja nýkeypta íbúð sína í miðborg Reykjavíkur á 265 þúsund krónur á mánuði.
Í færslu sinni sagði Sólveig Anna: „Ef örlagadísirnar verða mér hliðhollar og ég fæ að verða gömul kona ætla ég kannski að rita endurminningar mínar og þá er ég að velta því fyrir mér að kannski verði titillinn "Stríð mitt við allar stofnanir samfélagsins" mögulega viðeigandi.“
Ragnar Önundarson var stuttorður þegar hann skrifaði athugasemd við færslu Sólveigar Önnu: „Láttu forsetann vera í friði.“ Sólveig Anna lætur engan segja sér fyrir verkum og má segja að hún hafi brugðist ókvæða við: „Ekki segja mér hvað ég á að gera!“
Ragnar svaraði að bragði að athugasemd hans væri hugsuð sem heilræði. Sólveig Anna svaraði á móti að hún væri sín eigin örlagadís. „Gangi þér vel, þmt. að hlusta. Þú ert með tvö eyru en bara einn munn,“ sagði Ragnar þá.
„Ég nota þau skynfæri vel. Enda búin að æfa mig í þau 45 ár sem ég lifað. Vel ígrunduð afstaða mín í þessu máli sem og öllum öðrum sem ég tjái mig um er byggð á sjálfstæðu mati mínu á staðreyndum. Þar reynast eyrun og augun mér vel í því að flytja upplýsingar inn í heilann og munnurinn og fingurnir vel í að koma þeim á framfæri,“ svaraði Sólveig á móti.