Sólveig Anna bitur og sár: „Niðurstaðan í gær var ömurleg“

„Niðurstaðan í gær var ömurleg. Enn ein sönnunin á því að sá hópur vinnuaflsins sem jaðarsettastur er skal ekki gera sér neinar vonir um að réttlætið sé að finna hjá þeim sem stýra kerfinu,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.

Eins og greint var frá í gær vísaði Héraðsdómur Reykjavíkur frá dómi kröfum fjögurra fyrr­verandi starfs­manna starfs­manna­leigunnar Menn í vinnu ehf. gegn Eldum rétt og þrotabúi MIV ehf. Þá voru forsvarsmenn Menn í vinnu einnig sýknaðir af kröfum starfsmannanna. Efling hyggst áfrýja niðurstöðunni til Landsréttar.

Starfs­mennirnir, rúmenskir ríkis­borgarar, kröfðust skaðabóta vegna vangoldinna launa auk miskabóta meðal annars vegna aðbúnaðar í hús­næði sem MIV ehf. út­vegaði þeim að Dal­vegi 24 í Kópavogi.

Efling var mönnunum til aðstoðar og segir Sólveig Anna að niðurstaðan komi henni ekki á óvart.

„Fjórar manneskjur af erlendum uppruna, fátækt verkafólk gegn íslenska arðránskerfinu; ef að eitthvað er orðið alveg augljóst á þessu landi er það undirsett staða fátæks farandverkafólks og forréttindi kapítalista í samfélagsgerðinni.“

Sólveig Anna vísar í ummæli Halldórs Benjamíns Þorbergssonar, framkvæmdastjóra SA, í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu í dag þar sem hann fagnaði niðurstöðunni. Sagði hann ljóst að aðför Eflingar að Eldum rétt hefðu valdið fyrirtækinu miklu tjóni og eðlilegt væri að fyrirtækið skoðaði réttarstöðu sína gagnvart Eflingu. Sólveig segir ekki koma á óvart að Halldór hafi fagnað niðurstöðunni.

„Það væri þó óskandi að hann og aðrir meðlimir efnahagslegrar yfirstéttar Íslands sýndu á einhverjum tímapunkti færni í því að setja sig í spor annara og viðurkenndu að það ástand sem fengið hefur að vaxa og dafna í þessu samfélagi er ógeðslegt og til skammar fyrir þau sem vaka yfir því og næra með ýmist aðgerðum eða aðgerðarleysi sínu. Það hlýtur þó að fara að koma að því að við gefum upp vonina um að getan til samkenndar með þeim lægst settu sé yfirleitt til staðar hjá íslenskri yfirstétt, sem ítrekað tekur sjálfsagðri réttindabaráttu vinnuaflsins sem persónulegri árás eða tilraun til hryðjuverka.“

Sólveig Anna segist í færslu sinni á Facebook í dag vera stolt af því að Efling, undir hennar stjórn, hafi ákveðið að aðstoða farandverkamennina við að höfða mál. Annars hefðu starfsmennirnir aldrei getað það sjálfir.

„Ég líkt og þau, vonaði að íslenskt lagaumhverfi gæti bætt þeim að einhverju leiti þá ömurlegu meðferð og lífsreynslu sem þau urðu fyrir. En þegar kemur að því að vernda þann hóp sem Petruta, Romario, Sorin og Alexandru (sem var ekki orðinn 18 ára þegar hann lenti í óbærilegum aðstæðum, lokkaður hingað til að vinna, með ekkert á milli handanna, með ekkert að borða nema núðlusúpur) tilheyra er eftir gærdaginn ljóst að kerfið og lögin hafa ekki áhuga, geta það ekki, gera það ekki.“

Færslu Sólveigar Önnu má lesa í heild sinni hér að neðan.

Í gær féll dómur í máli sem Efling aðstoði fjóra Rúmena við að höfða gegn hinni alræmdu starfsmannaleigu MIV (Menn í...

Posted by Sólveig Anna Jónsdóttir on Fimmtudagur, 25. febrúar 2021