Sólveig Anna: Álagsgreiðslur fyrir leikskóla-fólkið okkar strax!

Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, for­mað­ur verk­a­lýðs­fé­lags­ins Efling­ar, kall­ar eft­ir því að starfs­fólk leik­skól­a fái strax greidd­ar á­lags­greiðsl­ur en frá morg­un­deg­in­um er skól­a­hald lagt nið­ur á öll­um skól­a­stig­um utan leik­skól­a. Leik­skól­ar starf­a á­fram með ó­breytt­um hætt­i þrátt fyr­ir hert­ar sótt­varn­a­að­gerð­ir.

„Starfs­fólk leik­skól­ann­a er ó­miss­and­i starfs­fólk. Sann­leik­ur­inn er að þau eru í hópi þeirr­a allr­a mest ó­miss­and­i. Ó­miss­and­i og ó­met­an­leg. Og þurf­a nú að hald­a á­fram að mæta, ób­ól­u­sett á laun­um sem end­ur­spegl­a á­hug­a­leys­i vald­a­stétt­ar­inn­ar á hög­um þeirr­a, hald­a á­fram að stand­a sína plikt,“ skrif­ar Sól­veig Anna á Fac­e­bo­ok.

Hún legg­ur fram þá af­drátt­ar­laus­u kröf­u að starfs­fólk leik­skól­a fái „mynd­ar­leg­a á­lags­greiðsl­u“ frá borg og sveit­ar­fé­lög­um. Með því geti þau sýnt að þau skilj­i hve mik­il­væg þess­i störf eru og að sam­fé­lag­ið kom­ist ekki af án þeirr­a.

„Þett­a eru mest kon­ur og stór part­ur þeirr­a til­heyr­ir þeim hópi sem einn­a lægst laun­in hef­ur á ís­lensk­um vinn­u­mark­að­i. Á­lag­ið á leik­skól­un­um var gríð­ar­leg­a mik­ið áður en far­ald­ur­inn nam hér land en hef­ur ver­ið tryll­ings­legt síð­ast­a ár,“ skrif­ar Sól­veig Anna.

Mynd/Facebook