„Efling mun aldrei gefast upp fyrir ofbeldi og ógnarstjórn,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar í aðsendri grein á Vísi.
Þar fordæmir hún ótímabundið verkbann sem Samtök atvinnulífsins hafa lagt á Eflingu og segir að í því felist hótun um að félagsmenn Eflingar á almenna vinnumarkaðinum verða sviptir launum sínum frá og með fimmtudeginum í næstu viku, 2. mars.
„Áhrifamáttur þessarar aðgerðar er mikill af einfaldri ástæðu: fólk sem getur vart lifað af launum sínum getur augljóslega ekki lifað án þeirra. Samtök atvinnulífsins stóla á að það sé auðveldara að svelta fólk sem býr þegar við hungurmörk til hlýðni.“
Sólveig Anna bendir í grein sinni á að saga kjarabaráttu sýni að hinir sterku hafi sjaldnast miklar áhyggjur af velferð þeirra sem minna mega sín. Segir hún að ákvörðun Samtaka atvinnulífsins um að bregðast við sanngjörnum kröfum láglaunafólks um launahækkanir með því að svipta það lífsviðurværi sínu sýni að þetta hefur ekki breyst.
„Saga kjarabaráttu sýnir líka að ofbeldi má aldrei mæta með uppgjöf. Friður sem varir aðeins svo lengi sem hinn sterki fær öllu sínu framgengt er ekki friður, heldur ógnarstjórn. Það er það sem verkbann Samtaka atvinnulífsins á Eflingu snýst raunverulega um. Það snýst ekki um þær hóflegu hækkanir lægstu launa sem Efling hefur krafist heldur um það að sýna Eflingu – og um leið öðrum stéttarfélögum og stjórnvöldum – hver það er sem ræður á íslenskum vinnumarkaði og í íslensku samfélagi. Með því að taka lífsviðurværið af 20.000 fjölskyldum ætla Samtök atvinnulífsins að sýna hverjir það eru sem halda um tauma ógnarstjórnar á íslenskum vinnumarkaði.“
Sólveig Anna segir að sem betur fer hafi fjölmargir atvinnurekendur þegar lýst því yfir við starfsfólk sitt að það muni ekki taka þátt í verkbanninu.
„Engu að síður reyna Samtök atvinnulífsins að spila sig sem einræðisherra hins íslenska vinnumarkaðar, og láta sem að öllum – jafnvel atvinnurekendum sem ekki eru félagar í SA – sé skylt að framfylgja gerræðislegum hótunum þeirra. Mikilvægt er að félagsfólk í Eflingu krefji sína atvinnurekendur um skýr svör um afstöðu þeirra til verkbanns og hvort að þeir ætli að láta fólk ganga launalaust. Sett hefur verið upp könnun á vefsíðu félagsins þar sem félagsfólk getur komið áleiðis upplýsingum um þetta.“
Í lok greinar sinnar segir Sólveig Anna að Efling muni aldrei gefast upp fyrir ofbeldi og ógnarstjórn.
„Efling fordæmir verkbann Samtaka atvinnulífsins og mun berjast gegn því af alefli. Sterkasta afl verkafólks er fjöldinn og samstaðan, og félagið mun sýna þann styrk í verki í baráttu gegn verkbanninu á næstu vikum. Félagið mun boða aðgerða strax klukkan 12 á hádegi næstkomandi fimmtudag, á þeirri stundu sem verkbannið hefst, og mun bjóða öllum félagsmönnum sem lenda í verkbanni að taka þátt í þeim.“