Sóley Tómasdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi, veltir því fyrir sér hvort og þá hvernig væri hægt að blása til mótmæla vegna meintra brota Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra á sóttvarnarreglum.
Sóley er í hópi þeirra sem hafa kallað eftir afsögn Bjarna Benediktssonar vegna málsins.
Í færslu á Twitter á öðrum degi jóla sagði Sóley:
„Hugmyndaþráður: Undir venjulegum kringumstæðum, eða ef við værum öll Bjarni væri búið að blása til mótmæla fyrir utan Kryddsíldina. Nú er spurning hvernig hægt er að blása til mótmæla án þess að stofna heilsu fólks í hættu. Allar góðar hugmyndir vel þegnar,“ segir Sóley sem varpar fram tveimur hugmyndum:
„Að leggja bílum þvers og kruss og blokka akstursleiðir að útsendingarstað?
Að mæta á bílum og liggja á flautunni fyrir utan? Jafnvel búa til eitthvað stef?“
Kryddsíldin er á dagskrá Stöðvar 2 klukkan 14 á gamlársdag en þá gera formenn þeirra flokka sem eiga sæti á Alþingi upp árið. Þar fara jafnan fram nokkuð hvassar umræður og má búast við því sama eftir þrjá daga enda árið verið tíðindamikið.
Ásta Guðrún Helgadóttir, fyrrverandi þingmaður Pírata, leggur til að blásið verði í herlúðra á Twitter á meðan á Kryddsíldinni stendur. „Flestir íslenskir stjórnmálamenn eru á twitter. Hægt að veita stjórnarliðum sem taka þátt í umræðunni hér smá reality check. Láta #afsögn trend á íslenska Twitter samhliða #kryddsíld eða eitthvað.“
Sóley vill þó grípa til meira afgerandi leiða. „Tvitter má loga að eilífu, en það er soldið búbbluleg aðgerð og dugir ekki ein og sér. Vil að gamla fólkið sem veit ekki hvað við erum reið finni fyrir mótmælunum þegar þau horfa á sjónvarpið.“
Óvíst er hvort mikil alvara liggi að baki þessum hugmyndum en ef blásið verður til mótmæla við upptökustað Kryddsíldarinnar yrði það ekki í fyrsta skipti.
Skemmst er að minnast mótmæla við Hótel Borg á gamlársdag 2008 en þar innandyra var verið að sýna beint frá Kryddsíldinni. Um mjög hörð mótmæli var að ræða og þurfti að hætta útsendingu eftir að mótmælendur brenndu í sundur kapla. Lögregla beitti piparúða gegn mótmælendum sem létu reiði sína meðal annars bitna á tæknimönnum.
Hugmyndaþráður:
— Sóley Tómasdóttir (@soleytomasar) December 26, 2020
Undir venjulegum kringumstæðum, eða ef við værum öll Bjarni væri búið að blása til mótmæla fyrir utan Kryddsíldina. Nú er spurning hvernig hægt er að blása til mótmæla án þess að stofna heilsu fólks í hættu. Allar góðar hugmyndir vel þegnar, ég skal byrja: