Meirihluti bæjarráðs Akureyrar hefur samþykkt að veita jákvæða umsögn vegna umsóknar um vínveitingaleyfi til rekstraraðila veitingasölu í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar.
Bæjarlögmaður vísaði málinu til bæjarráðs þar sem það gæti talist stefnumarkandi þar sem óskað var vínveitingaleyfis í tengslum við útivistarsvæði sem Akureyrarbær rekur. Sem fyrr segir hefur bæjarráð samþykkt að veita jákvæða umsögn og verður bæjarlögmanni falið að skila inn umsögn.
Sóley Björk Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi Vinstri grænna, lagði fram bókun á fundi bæjarráðs þar sem hún lýsti andstöðu sinni við að áfengissala verði leyfð.
„Ég tel sölu áfengis í Hlíðarfjalli ganga harðlega gegn forvarnastefnu Akureyrarbæjar og á engan hátt viðeigandi á þessu svæði þar sem ungt fólk, börn og fjölskyldur hafa hingað til notið útivistar og samveru sem er að mínu mati mikilvægur þáttur í þjónustu við íbúa bæjarins. Þessi ákvörðun samræmist á engan hátt því ákvæði í samstarfssáttmála bæjarstjórnar um að setja hagsmuni barna og ungmenna í forgang. Vert er að benda á að mikil hætta getur skapast í brekkunum hafi skíðafólk ekki fulla stjórn á hreyfingum sínum. Sé það vilji meirihluta bæjarráðs að leyfa sölu áfengis í Hlíðarfjalli ætti í það minnsta að setja þröngar skorður og aðeins leyfa vínveitingar í veitingasölu og ekki megi afgreiða áfengi í öðrum umbúðum en opnum glösum.“