Sóley Tómasdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi og femínisti, segist ætla að leyfa sér að trúa því í smástund að það sé eitthvað mikið að gerast eftir atburði dagsins.
Eins og greint hefur verið frá hafa Arnar Grant, Ari Edwald og Hreggviður Jónsson allir brugðist við frásögn Vítalíu Lazareva sem lýsti meintu ofbeldi af hálfu nokkurra manna í sumarbústaðarferð í desember 2020. Þremenningarnir voru allir í hópnum og er Arnar farinn í leyfi sem einkaþjálfari í World Class, Ari í leyfi sem framkvæmdastjóri Ísey og Hreggviður er horfinn úr stjórn Veritas.
„Ég ætla að leyfa mér að trúa því í smá stund að það sé eitthvað mikið að gerast. Að stjórnir stórfyrirtækja séu farnar að trúa þolendum og reka valdakarla er stórkostlegt,“ segir Sóley á Twitter.
Hún bætir svo við:
„Veit vel að svo kemur bakslag og allskonar en ég nenni ekki að horfast í augu við það strax. Takk Vítalía!“
Ég ætla að leyfa mér að trúa því í smá stund að það sé eitthvað mikið að gerast. Að stjórnir stórfyrirtækja séu farnar að trúa þolendum og reka valdakarla er stórkostlegt. Veit vel að svo kemur bakslag og allskonar en ég nenni ekki að horfast í augu við það strax. Takk Vítalía!
— Sóley Tómasdóttir (@soleytomasar) January 6, 2022