Sóley sorgmædd fyrir hönd Daða – Verður hann sendur aftur út á næsta ári?

Óhætt er að segja að mörgum hafi brugðið við þegar það fréttist að meðlimur Gagnamagnsins hefði greinst jákvæður fyrir COVID-19 í skimun í morgun.

Þetta þýðir að Daði og Gagnamagnið munu ekki stíga á svið á seinna undanúrslitakvöldinu annað kvöld og verður þess í stað notast við upptöku. Fari svo að Ísland komist áfram á sjálft úrslitakvöldið er einnig óvíst hvort íslenski hópurinn fari á svið.

Margir hafa brugðist við þessum tíðindum á Twitter og er borgarfulltrúinn fyrrverandi Sóley Tómasdóttir í þeim hópi. Hún bendir á að óheppnin hafi elt Daða upp á síðkastið og saga hans sé í raun sorgarsaga. Hún fullyrðir að Daði hefði unnið Eurovision hefði hann farið út með lag sitt árið 2017, árið sem Svala Björgvinsdóttir fór út.

„Hann hefði líka unnið 2020 ef ekki hefði verið fyrir Covid. 2021 er hann mættur og reddí í þriðja skiptið en fær ekki einu sinni að stíga a svið!“

Hér að neðan má sjá brot af umræðunni á Twitter. Margir eru sorgmæddir fyrir hönd íslenska hópsins og einn stingur upp á því að Daði verði hreinlega sendur aftur út á næsta ári til að vinna keppnina.