Þeir Bogi Ágústsson fréttamaður og Ólafur Þ. Harðarson eru órjúfanlegur hluti kosninganætur fyrir marga Íslendinga og standa vaktina í kosningasjónvarpi RÚV. Sóley Tómasdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Vinstri grænna, biðlar til þeirra félaga á Facebook að breyta orðanotkun sinni í kosningasjónvarpinu.
„Má ég biðja ykkur í fyllstu vinsemd um að reyna að tala um fólk en ekki menn og um þau en ekki þá í útsendingunni á morgun?
Það er bæði mikilvægt af því að í eiginlega öllum tilfellum er það réttara - og svo gegnið þið tveir líka mikilvægu hlutverki í að skapa, viðhalda og breyta ímynd stjórnmálanna.
Þið getið valið hvort þið viðhaldið karllægri áru með karllægu málfari eða hvort þið hjálpið til við að breyta ímynd stjórnmálanna í vettvang þar sem gert er ráð fyrir fólki af öllum kynjum.
Bestu kveðjur og gangi ykkur allt í haginn,“ skrifar Sóley.