Sóley segir Klöru hluta af feðraveldinu – Kristrún kemur henni til varnar

Sóley Tómasdóttir, femínisti og fyrrverandi borgarfulltrúi, segir að Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, virðist vera skólabókardæmi um konu sem fær að vera „memm“ í feðraveldinu.

Þetta segir hún í færslu á Twitter-síðu sinni en tilefnið er umræðan um KSÍ sem hefur verið mjög hávær undanfarna daga. Eins og kunnugt er sagði Guðni Bergsson, formaður sambandsins, af sér í fyrradag og þá tilkynnti stjórn sambandsins um afsögn sína í gærkvöldi. Ástæðan er umræðan um kynferðisbrotamál innan sambandsins og hvernig þau hafa verið meðhöndluð.

Klara Bjartmarz tók skýrt fram í fréttum RÚV í gærkvöldi að hún ætlaði ekki að láta af störfum. Hún væri ráðin starfsmaður sambandsins og væri tilbúin að vinna áfram með nýrri stjórn sambandsins. Mjög hefur verið þrýst á Klöru að láta af störfum.

Sóley segir á Twitter-síðu sinni:

„Klara virðist vera skólabókardæmi um konu sem fær að vera memm í feðraveldinu. Hún verður að fylgja þeirra leikreglum og aðlagast þeirra kúltúr, annars yrði henni sparkað. Hún hefur unnið fyrir KSÍ í 27 ár. Hefur greinilega ekki stigið feilspor að þessu leyti.“

Þessu eru ekki allir sammála og deilir almannatengillinn Örn Úlfar Sævarsson athugasemd Kristrúnar Heimisdóttur, lögfræðings, fyrrverandi varaþingmanns og lektors við Háskólann á Bifröst, sem hún lét frá sér fara undir færslu á Facebook.

„Held að þetta sé nú ekki alveg sanngjörn mynd af hennar starfi gegnum tíðina,“ segir Örn og birtir færslu Kristrúnar sem benti á að Klara hefði verið varaformaður Samtakanna 78 þegar stórir sigrar unnust í baráttu samtakanna. Þá hafi hún leitt og fylgt eftir uppbyggingu kvennalandsliðanna í 27 ár.

„Hún hefur barist við ómenningu og karlrembu alla tíð. Það er bara alrangt og beinlínis ljótt að gera henni upp að vera allt önnur manneskja en hún er. Hún er femínisti, baráttukona fyrir homma, lesbíur og aðra minnihlutahópa og hefur alltaf og mun alltaf beita sér fyrir réttindum og velferð þessara hópa. Allir sem til þekkja vita þetta vel,“ sagði Kristrún í umræddri færslu.

Örn bætir svo við að hugsanlega sé Klara orðin hluti af vandamálinu frekar en lausninni. Það standist þó ekki skoðun að hún hafi unnið þarna í 27 ára bara með því að spila með feðraveldinu. Sóley stendur þó fast við sína skoðun og virðist ekki hafa mikið álit á Klöru.

„Ekki bara, en líka. Það er ekkert sem gefur til kynna að hún sé baráttukonan sem Kristrún lýsir í því sem hún hefur sagt og gert að undanförnu - og raunar sé ég engin merki um þessa baráttukonu neins staðar...“