Sóley: Fleiri ljótar sögur af karlaklúbbnum sem fjallað var um í gær?

Sóley Tómasdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi og femínisti, segir að það kæmi henni ekki á óvart þó til væru fleiri sögur af íslenska karlaklúbbnum sem fjallað var um í gær.

Hin 24 ára Vítalía Lazareva var gestur Eddu Falak í hlaðvarpsþættinum Eigin konur í gær. Þar sagðist Vítalía ætla að leita réttar síns eftir að hafa orðið fyrir kyn­ferðis­of­beldi af hálfu þriggja eldri karl­manna er hún var í ástar­sam­bandi með fé­laga þeirra.

Vítalía hefur sjálf fjallað um málið á samfélagsmiðlum undanfarnar vikur en í þættinum sagði hún til dæmis frá vægast sagt óþægilegri reynslu í heitum potti í sumarbústaðarferð með mönnunum.

Sagði hún einnig frá því þegar henni var boðið í golfferð með umræddum manni og þar hafi vinur hans, þjóðþekktur maður, gengið inn á þau. Ást­maður hennar hafi síðan sagt að til þess að kaupa þögn vinarins þyrfti hún að veita honum kyn­ferðis­legan greiða.

„Ég horfi framan í hann þegar vinur hans er að fara niður á mig og ég á að vera að fara niður á hann. Ég horfi í augun á honum, ég er farin að gráta og segi honum að ég vil þetta ekki. Hann segir við mig að þetta verði allt í lagi því hann er með mér“, segir hún. „Hvað átti ég að gera? Átti ég að hlaupa út? Ég gat ekki einu sinni farið á bílnum mínum því þetta var á einka­vegi sem var lokaður, ég geti ekki farið án þess að hliðið var opnað fyrir mér.“

Sóley Tómasdóttir segir á Twitter-síðu sinni að það sem Vítalía lýsir sé skólabókardæmi um misnotkun og hvernig mörk hennar voru kerfisbundið máð og brengluð af karli sem vissi vel hvað hann var að gera. Hún endar færsluna á þessum orðum:

„Kæmi mér ekki á óvart þó fleiri sögur væru til af þessum karlaklúbbi sem virðist þrífast á kvenfyrirlitningu. Takk Vítalía!“