Sóley Tómasdóttir, femínisti og kynjafræðingur, er ekki parhrifin af ummælum sem Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, lét falla í hádegisfréttum RÚV í dag.
Í fréttinni var hann spurður út í þá hörðu gagnrýni sem komið hefur fram vegna skipunar Jóns Gunnarssonar í embætti dómsmálaráðherra. Þá hefur val Jóns á aðstoðarmönnum vakið athygli en fyrir valinu urðu þeir Brynjar Níelsson og Hreinn Loftsson. Hefur meðal annars verið blásið til undirskriftasöfnunar til að mótmæla skipun Jóns í ráðherraembættið.
Bjarni var spurður út í þetta í fréttum RÚV í dag og gerði lítið úr þeim athugasemdum sem komið hafa fram. Sagði hann enga málefnalega gagnrýni hafa komið fram á skipunina.
„Fólki er frjálst að hafa skoðun á einstaka ráðherrum en ég sé bara engan málefnalegan grundvöll fyrir þeirri gagnrýni sem hefur komið fram,“ sagði Bjarni.
Það voru eftirfarandi ummæli sem Bjarni lét falla sem Sóley telur að muni eldast illa eins og sést á tísti hennar hér að neðan:
„Ég held að þú sért að tala hérna fyrir hönd lítils minnihlutahóps. Og það er sjálfsagt fyrir hann að hafa sínar skoðanir. Ég er bara algerlega og fullkomlega ósammála þessum sjónarmiðum.“
Sjitt hvað þetta kvót á eftir að eldast illa:
— Sóley Tómasdóttir (@soleytomasar) December 7, 2021
"Ég held að þú sért að tala hérna fyrir hönd lítils minnihlutahóps. Og það er sjálfsagt fyrir hann að hafa sínar skoðanir. Ég er bara algerlega og fullkomlega ósammála þessum sjónarmiðum."https://t.co/23VeqMPjm4